Telur hagvöxtinn viðunandi í alþjóðlegum samanburði 8. júní 2011 11:15
Greining Íslandsbanka telur að hagvöxtur upp á 2,2% á Íslandi sé viðunandi í alþjóðlegum samanburði um þessar mundir. en hann var 2,5% að meðaltali í ríkjum ESB og 2,3% í Bandaríkjunum á sama tíma. Á Norðurlöndunum var vöxturinn 6,5% í Svíþjóð, 5,8% í Finnlandi, 1,3% í Danmörk og 0,1% í Noregi. Þess ber þó að geta að flest þessara landa hafa verið að rétta úr kútnum um nokkurt skeið og hagvöxtur mældist þar í fyrra öfugt við Ísland. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að hagvöxtur mældist á fyrsta fjórðungi ársins. Var landsframleiðslan þá 3,4% meiri í magni mælt en á sama fjórðungi í fyrra. Er þetta í fyrsta sinn sem vöxtur mælist þannig síðan á 2. ársfjórðungi 2008. Ársíðarleiðrétt var vöxturinn á milli ára 2,2%. Það var Hagstofa Íslands sem birti hagvaxtartölur fyrsta ársfjórðungs í morgun en hagstofa ESB birti endurskoðaðar hagvaxtartölur fyrsta ársfjórðungs fyrir aðildarríki ESB á sama tíma. Hagvöxturinn á fyrsta fjórðungi ársins var knúinn áfram af aukningu í fjárfestingum og neyslu. Jókst einkaneyslan um 1,5% frá sama ársfjórðungi í fyrra í magni talið og fjárfestingin um 13,3%. Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar var hins vegar neikvætt á fyrsta fjórðungi þar sem útflutningur dróst saman um 1,6% og innflutningur jókst um 1,3%. Í ljósi lágs raungengis og hagvaxtar á heimsvísu eru það vonbrigði að sjá ekki vöxt í útflutningi. Ekki var nema 1,1% vöxtur í útflutningi í fyrra og fer þetta ár ekki vel af stað. Líklegt er að skuldavandi fyrirtækja og erfiður aðgangur að erlendu fjármagni er að setja því skorður hversu vel tækifærin til aukins hagvaxtar eru að nýtast á þessum vettvangi. Auk þess eru helstu vöruútflutningsgreinar Íslands, sjávarafurðir og ál, lítt færar um að auka framleiðslu til skamms tíma litið, þar sem sú fyrrnefnda er háð þróun aflamarks og sú síðarnefnda framboði á orku og alllöngum framkvæmdatíma til aukinnar framleiðslugetu. „Tölur þessar renna stoðum undir þær spár sem hafa sagt að hagvöxtur verði hér á landi í ár. Seðlabankinn, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Hagstofa Íslands og OECD spá allir hagvexti á bilinu 2,2-2,3% á þessu ári. Í ljósi þess að hagvaxtartölur fyrsta fjórðungs er í takti við þessar spár reiknum við ekki með því að þær breyti neinu um næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans. Reiknum við með því að bankinn haldi stýrivöxtum sínum óbreyttum en útilokum ekki hækkun um 0,25 prósentur,“ segir í Morgunkorninu.
Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira