Haaß: Íslendingar voru bara betri Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. mars 2011 12:15 Michael Kraus í leiknum í gær. Mynd/Vilhelm
Michael Haaß, leikstjórnandi í þýska landsliðinu í handbolta, viðurkenndi eftir leikinn gegn Íslandi í gær að þeir hafi einfaldlega verið lakari aðilinn í leiknum. Ísland vann sannfærandi sigur, 36-31, og átti liðið sérstaklega góðan fyrri hálfleik þar sem strákarnir okkar skoruðu 21 mark og Björgvin Páll Gústavsson fór á kostum í markinu. „Við verðum að viðurkenna að Íslendingar voru bara betri í dag," sagði Haaß í samtali við þýska fjölmiðla í gær. „Við töpuðum leiknum í fyrri hálfleik. Við vorum ekki nógu ákveðnir. Við vildum allir standa okkur vel en getum aðeins sjálfum okkur um kennt." Þjóðverjar lentu mest níu mörkum undir í síðari hálfleik í gær en náðu að klóra í bakkann og minnka muninn í þrjú mörk, 27-23, þegar rúmar tíu mínútur voru til leiksloka. „Við náðum að halda í við þá í seinni hálfleik," sagði Michael Kraus. „Það veit á gott fyrir síðari leikinn." Heiner Brand, landsliðsþjálfari, segir að það megi ekki gleyma því að Þýskaland hefur ekki unnið leik hér á Íslandi síðan 1992. „En við ætluðum okkur samt að gera betur í þessum leik. Hér tapa þó flest lið, fyrir utan kannski Frakkana," sagði Brand og sagði einnig að frammistaða Björgvins Páls í markinu hafi haft mikið að segja. „Stundum ná markverðir að loka markinu og þá er erfitt að vinna svona sterkt lið." „Ég bjóst við meiri grimmd í varnarleiknum en þar skorti okkur baráttu. En ég verð samt að hrósa mínum leikmönnum því þeir gáfust aldrei upp í leiknum."
Handbolti Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira