HM 2011: Rússland og Spánn áfram úr B-riðli Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. desember 2011 12:15 Tatiana Khmyrova og félagar í rússneska landsliðinu virðast ógnarsterkir. Nordic Photos / AFP
Ef Ísland kemst áfram í 16-liða úrslitin með því að enda í fjórða sæti A-riðils munu stelpurnar okkar mæta heimsmeisturum Rússlands á sunnudaginn kemur. Eins og fjallað er um hér fyrir neðan getur Ísland lent í 2.-5. sæti A-riðils en lokaumferð riðlakeppninnar fer fram á föstudaginn. Fjögur efstu liðin í hverjum riðli komast áfram í 16-liða úrslitin, sem hafa tekið við af milliriðlafyrirkomulaginu sem hingað til hefur verið við lýði á HM. Fjögur efstu liðin í A-riðli spila „í kross“ við fjögur efstu liðin í B-riðli í 16-liða úrslitunum. Þannig mætir efsta lið A-riðils liðinu sem varð í fjórða sæti B-riðils, 2. sætið í A-riðli mætir 3. sætinu í B-riðli og svo framvegis. Rússland, núverandi heimsmeistari, hefur þegar tryggt sér sigurinn í B-riðli en það gerði liðið með ellefu marka sigri á Hollandi í gær, 35-26. Spánn tryggði sér annað sætið með 27-18 sigri á Kasökum. Þar með er ljóst að Rússland mætir liðinu sem verður í fjórða sæti í A-riðli og Spánverjar liðinu sem verður í þriðja sæti í A-riðli. Holland og Suður-Kórea eru sömuleiðis komin áfram en þessi lið mætast í hreinum úrslitaleik á föstudaginn um hvort liðið verði í þriðja sæti riðilsins. Yfirburðir Rússa í riðlinum hafa verið með ólíkindum en liðið hefur unnið leikina sína fjóra með samtals 67 marka mun. Rússar mæta Kasökum á föstudaginn og munu líklega taka þann leik „með vinstri“. Ástralía er í neðsta sæti B-riðils án stiga og en þessu fastagestir á heimsmeistaramótum í handbolta hafa tapað öllum fjórum leikjunum sínum til þessa með markatölunni 43-180.
Tengdar fréttir HM 2011: Ísland á enn möguleika á 2.-5. sæti í A-riðli Stelpurnar okkar geta enn náð öðru sætinu í A-riðli á HM 2011 í Brasilíu með sigri á Kína og hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum. Sterk lið bíða Íslandi í 16-liða úrslitunum ef stelpurnar komast áfram. 8. desember 2011 09:00 Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira
HM 2011: Ísland á enn möguleika á 2.-5. sæti í A-riðli Stelpurnar okkar geta enn náð öðru sætinu í A-riðli á HM 2011 í Brasilíu með sigri á Kína og hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum. Sterk lið bíða Íslandi í 16-liða úrslitunum ef stelpurnar komast áfram. 8. desember 2011 09:00