Kötturinn í sekknum? 17. desember 2011 07:00 Opin hugmyndasamkeppni á vegum borgaryfirvalda um svæðið Ingólfstorg og Víkurgarð á að taka ríkt tillit til elstu byggðar í borginni. Þar er bara einn hængur á og hann ekki lítill. Í keppninni er endurvakin hugmynd lóðarhafa við Vallarstræti um allt að 130 herbergja og allt að 4.500 fm hótel á einstöku svæði þar sem sum af elstu húsum borgarinnar mynda elstu götumyndir landsins. Mörgum fannst ekki allt jafnt um þetta allt of stóra hótel í aðdraganda kosninga í fyrra. Brugðist var hart við til varnar húsum og götumyndum ásamt tónleikasalnum ástsæla í NASA, að ógleymdu sólskini og mannlífi á Ingólfstorgi. Hugmyndin þótti ótæk eftir mikil mótmæli en er nú sett fram að nýju. Sagt er að eigandi lóðanna við Vallarstræti hafi haldið til streitu stífri kröfu um stórt hótel byggðri á gildandi deiliskipulagi. Fólk hafi verið komið alveg upp við vegg. Þetta hljóta margir að skilja sem svo að erfitt sé fyrir skipulagsráð Reykjavíkur að hafna stórri hótelbyggingu á forsendum gildandi skipulags. Sú er þó alls ekki raunin. Samkvæmt áratugagömlu deiliskipulagi Kvosarinnar er við Vallarstræti sunnanvert gert ráð fyrir allt að 4,5 hæðum á lóð Sjálfstæðishúss (NASA), 3,5 hæðum á lóð Hótel Víkur og 3,5 hæðum á lóð Aðalstrætis 7 (gula hússins sem oft er nefnt Brynjólfsbúð). Á milli tveggja síðastnefndu lóðanna er síðan þröngt borgarland þar sem gengið er inn dimmt sund í átt að styttu Skúla fógeta í Víkurgarði. Þeirri ræmu er haldið opinni í skipulaginu og hæðarmörkin eiga að draga úr skuggavarpi inn á torgið sem nú heitir Ingólfstorg. Á hluta fyrstnefndu lóðarinnar stendur síðan hús við Austurvöll og hefur verið friðað að ytra byrði svo að þar verða ekki byggðar neinar 4,5 hæðir. Þetta er framhús Sjálfstæðishússins eða NASA, sem var um tíma augnstungið og forskalað en hefur aftur öðlast fyrri reisn. Til að byggja 4.500 fm hótel á þessum þremur lóðum þyrfti að sameina lóðirnar, leggja lóðarhafa til borgarland á milli lóða og væntanlega fara upp úr hæðarmörkum einhvers staðar á lóðunum vegna þess sem ekki er lengur hægt að reisa á lóðarhluta friðaða hússins við Austurvöll. Á engu af þessu á lóðarhafi kröfu samkvæmt gildandi skipulagi. Að lóðarhafi eigi réttmæta kröfu á því gagnvart borginni að byggja svo stórt hótel og reka jafn einsleita starfsemi á þessum stað er ekki vafaatriði. Hann á það einfaldlega ekki. Gengið hefur á löngum bollaleggingum um að þarna gæti hugsanlega risið hótel en það er líka allt og sumt. Því máli var aldrei lokað af yfirvöldum og skipulagið stendur óhaggað. Í greinargerð með þessu gamla skipulagi er sérstaklega tekið fram að æskilegt væri að varðveita Hótel Vík og Aðalstræti 7 ef því mætti koma við. Umfjöllun borgarminjavarðar og húsafriðunarnefndar frá liðnum árum ásamt húsverndarkorti og þróunaráætlun miðborgar eru miklu afdráttarlausari og gefa skýrt til kynna að húsin og götumyndin við Vallarstræti hafi mikið varðveislugildi sem hluti af umgjörð Ingólfstorgs í Kvosinni, Grófinni og Grjótaþorpi. Þess vegna er hægara sagt en gert að rífa þessi hús eða færa þau til. Þau eru ekki bara merkilegar minjar fyrir okkur og komandi kynslóðir ein og sér heldur eru þau hluti af ómetanlegri heild. Kröftug andstaða við mögulegt niðurif húsanna við Vallarstræti, í samhengi við varðveislu Grjótaþorps og elsta byggðakjarna Reykjavíkur við Aðalstræti og Grófina og raunar húsvernd í Kvosinni yfirleitt, á sér nokkurra áratuga sögu. Á sama tímaskeiði hafa verið gerðar stórkostlegar endurbætur á gömlum húsum vítt og breitt í Kvosinni og nágrenni hennar. Hvarvetna er reynt að styrkja þá byggð með ýmsum ráðum. Þeim sem beinna hagsmuna eiga að gæta á þessum stað hefur því mátt vera ljóst svo áratugum skiptir að það yrði afar þungt fyrir fæti að rífa eða færa til húsin við Vallarstræti. Krafa um bætur vegna meintra byggingarheimilda á þessu viðkvæma svæði er hæpin, auk þess sem borg eða þjóðríki sem ber virðingu fyrir sögu sinni og uppruna ætti ekki að horfa í þær upphæðir ef til kæmi. Hótel sem er of stórt verður varla lítið við að fara í samkeppni. Þar þarf meira til. Margir vona samt að með snjöllum tillögum megi benda á leiðir til að styðja gömlu byggðina, hluta hótelið niður, draga úr byggingarmagni eða jafnvel fella hótelið að töluverðu leyti inn í Landsímahús og viðbyggingar þess sem einnig eru í eigu lóðarhafa. Fyrstu svör dómnefndar við spurningum benda til að keppendur geti leitað slíkra lausna. Keppendur gætu lagt kapp á að draga úr byggingarmagni og lagt sig alla fram um að sýna gamalli byggð nærgætni og virðingu. Dómnefnd hefur líka stöðu til að hafa jákvæð áhrif í þessa átt. Gömlu húsin þurfa að njóta sín til fulls og helst þarf að laða fram hugmyndir um margbreytilega starfsemi. Nú kann sumum að finnast að lóðarhafinn hafi með þessum lóðum keypt köttinn í sekknum fái hann ekki að byggja að vild, en þá þarf að muna að hér voru ekki sekkir heldur kettir í boði, gömul hús með níu líf og jafnvel fleiri til. Til allrar hamingju, því þessi hús í sínu einstaka samhengi eiga sér ríkari tilverurétt en flest hús önnur í borginni. Fulltrúar í skipulagsráði Reykjavíkur geta forðað slysi með því að standa gegn allt of stóru hóteli, leyfa sól á torgi og hlúa af metnaði að firnagömlum götumyndum. Eða gilda ekki lengur öll varnaðarorðin um fjármálaöfl og hættulega kappsama framkvæmdaaðila? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ótryggt aðgengi á Veðurstofureit Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Stattu vörð um launin þín Davíð Aron Routley Skoðun Byggjum fyrir eldra fólk, ekki ungt Ólafur Margeirsson Skoðun Ekki sprengja börn! Ellen Calmon Skoðun Fyrirtæki og stofnanir á Íslandi mega lögum samkvæmt ekki eiga viðskipti við Rapyd Björn B Björnsson Skoðun Sönnun um framlag hælisleitanda til íslensks samfélags Toshiki Toma Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir Skoðun Hlustum í eitt skipti á foreldra Jón Pétur Zimsen Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir Skoðun Að eitra Hvalfjörð Haraldur Eiríksson Skoðun Skoðun Skoðun Ótryggt aðgengi á Veðurstofureit Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Stattu vörð um launin þín Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Byggjum fyrir eldra fólk, ekki ungt Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Hlustum í eitt skipti á foreldra Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hugleiðingar um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs Örn Sigurðsson skrifar Skoðun Heildstætt heilbrigðiskerfi – hagur okkar allra Alma D. Möller skrifar Skoðun Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægi félagasamtaka og magnað maraþon Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Allt sem ég þarf að gera Dagbjartur Kristjánsson skrifar Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Notkun ökklabanda Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar Skoðun Ný sókn í menntamálum Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð, fálmandi mjálm eða aðgerðir? Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftirlíking vitundar og hætturnar sem henni fylgja Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Nýjar lausnir í kennslu – gamlar hindranir Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson skrifar Sjá meira
Fyrirtæki og stofnanir á Íslandi mega lögum samkvæmt ekki eiga viðskipti við Rapyd Björn B Björnsson Skoðun
Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar
Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar
Fyrirtæki og stofnanir á Íslandi mega lögum samkvæmt ekki eiga viðskipti við Rapyd Björn B Björnsson Skoðun