Svar við brigslum Jónas Fr. Jónsson skrifar 8. október 2011 06:00 Doktorsnemi skrifaði grein í Fréttablaðið um nýlega ráðningu á forstjóra Bankasýslu ríkisins og taldi hana minna á ráðningu mína sem forstjóra Fjármálaeftirlitsins síðsumars 2005, sem er alrangt. Heimildarvinna höfundar, Bjarna Torfasonar, er rýr, enda styðst hann við eina heimild, svokallaðan siðfræðikafla í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Þar felldu þrír einstaklingar sleggjudóma yfir fjölda einstaklinga án þess að sýna þá kurteisi eða manndóm að leita andmæla fyrst. Ekki gerði höfundur tilraun til að afla sér upplýsinga hjá mér eða þeim sem tóku ákvörðun um ráðninguna, þ.e. fyrrverandi stjórn Fjármálaeftirlitsins. Fagleg ráðningVið ráðningu í starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins sumarið 2005 var beitt faglegu ráðningarferli sem stjórnað var af ráðningafyrirtæki. Fleiri umsækjendur voru um stöðuna og enginn þeirra gerði athugasemdir eftir ráðningu mína. Engar athugasemdir voru heldur gerðar opinberlega við ráðninguna. Menntun og reynslaÍ grein Bjarna kemur fram að ég starfaði áður sem framkvæmdastjóri Innra markaðssviðs Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), þó að höfundur telji það litlu skipta. Á Innra markaðssviði ESA störfuðu um 25 sérfræðingar frá 8 löndum og undir starfsemi þess féllu m.a. málefni fjármálaþjónustu og fjármálamarkaðar. Þannig stýrði ég í tæp 5 ár eftirliti með málefnum fjármagnsmarkaða á Íslandi, Noregi og Liechtenstein. Áður en ég var ráðinn sem framkvæmdastjóri hjá ESA, í opnu ráðningaferli þar sem umsækjendur gátu komið frá öllu EES-svæðinu, starfaði ég sem sérfræðingur hjá stofnuninni varðandi málefni verðbréfamarkaða og frjálsra fjármagnsflutninga. Þar á undan starfaði ég bæði sem lögfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands og sinnti m.a. verkefnum tengdum fjármálamarkaðnum og hafði aðkomu að löggjöf um þann markað. Ég hef lokið embættisprófi í lögfræði, meistaraprófi í lögfræði frá Cambridge-háskóla og MBA-gráðu frá Vlerick Leuven Gent Management School, auk þess að vera með verðbréfamiðlunarpróf. Að síðustu er það ágætur mælikvarði á þekkingu og reynslu ef ótengdir aðilar vilja greiða fyrir þjónustu. Í dag rek ég lögmannsstofu þar sem viðskiptavinir eru einkum aðilar á fjármagnsmarkaði. NiðurlagHér hefur verið svarað tilefnislausum brigslum Bjarna Torfasonar. Þeir sem vilja skrifa málefnalega um íslenskan fjármálamarkað ættu að afla sér sjálfstæðra heimilda og ekki að líta á rannsóknarskýrsluna sem trúarrit, enda liggur fyrir sú niðurstaða Hæstaréttar að skýrslan er ekki sönnunargagn (mál 561/2010). Það kann að vera erfitt fyrir Bjarna, sem var starfsmaður rannsóknarnefndarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Frelsi kvenna er ekki vandamálið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Hvert fóru þessir tíu milljarðar? Þorvaldur Daníelsson Skoðun Takk hjúkrunarfræðingar! Siv Friðleifsdóttir Skoðun Ég býð mig fram til að taka Borgarlínuna fyrir þig Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Gömul viðhorf til leikskóla lifa enn Anna Margrét Ólafsdóttir Skoðun Dýrkeypt vanþekking og loftslagsblinda Ingu Sæland Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Íþróttamannvirki Hveragerðisbæjar Einar Alexander Haraldsson Skoðun Nýsköpun sem nærir Berglind Rán Ólafsdóttir,Björn Örvar Skoðun Rýtingur frá RÚV Björn B. Björnsson Skoðun Frjáls hugsun eða pólitísk rétthugsun Hlynur Áskelsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Skoðun Skoðun Hamingjan sem þjóðarverkefni: Leirársveit og hin nýja íslenska gullöld Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Frjáls hugsun eða pólitísk rétthugsun Hlynur Áskelsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Nýsköpun sem nærir Berglind Rán Ólafsdóttir,Björn Örvar skrifar Skoðun Gömul viðhorf til leikskóla lifa enn Anna Margrét Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ég býð mig fram til að taka Borgarlínuna fyrir þig Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Takk hjúkrunarfræðingar! Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Hvert fóru þessir tíu milljarðar? Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Frelsi kvenna er ekki vandamálið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íþróttamannvirki Hveragerðisbæjar Einar Alexander Haraldsson skrifar Skoðun Ráðabrugg Örn Sigurðsson skrifar Skoðun Viðsnúningur í rekstri og ábyrg uppbygging innviða í Hveragerði Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Njörður Sigurðsson,Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Elskar Sjálfstæðisflokkurinn Hafnarfjörð með upplýsingaóreiðu? Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Tími undanbragða er liðinn – Mætir ráðherra með svör? Hjálmar Hallgrímsson skrifar Skoðun Rýtingur frá RÚV Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Dýrkeypt vanþekking og loftslagsblinda Ingu Sæland Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Þurfa börn kynfræðslu? Indíana Rós Ægisdóttir,Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Við verðum til í tengslum – og þar byrjar líka heilunin Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Meðvituð blekking um og upplýsingaóreiða um fullveldið Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Að tala í mótsögn við sjálfan sig eða sitja hjá? Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Fjölbreytt ferðaþjónusta á víðsjárverðum tímum Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Finnbjörn A Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Skapandi greinar: lykill að nýsköpun Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Mataræði og hjartaheilsa Ellen Alma Tryggvadóttir skrifar Skoðun Hrein torg, fögur borg Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Gegn regnboganum: Hugmyndafræði, umburðarlyndi og frjálslyndi Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Fyrsta stefna Reykjavíkurborgar um gönguvæna borg Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Rangárþing eystra í atvinnusóknarsvæði höfuðborgarsvæðisins Inger Erla Thomsen skrifar Skoðun Hverskonar borg viljum við? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Röskun hafstrauma er þjóðaröryggismál Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Öryggi og gæði í leikskólum – ábyrgð okkar Gunnþórunn Valsdóttir skrifar Sjá meira
Doktorsnemi skrifaði grein í Fréttablaðið um nýlega ráðningu á forstjóra Bankasýslu ríkisins og taldi hana minna á ráðningu mína sem forstjóra Fjármálaeftirlitsins síðsumars 2005, sem er alrangt. Heimildarvinna höfundar, Bjarna Torfasonar, er rýr, enda styðst hann við eina heimild, svokallaðan siðfræðikafla í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Þar felldu þrír einstaklingar sleggjudóma yfir fjölda einstaklinga án þess að sýna þá kurteisi eða manndóm að leita andmæla fyrst. Ekki gerði höfundur tilraun til að afla sér upplýsinga hjá mér eða þeim sem tóku ákvörðun um ráðninguna, þ.e. fyrrverandi stjórn Fjármálaeftirlitsins. Fagleg ráðningVið ráðningu í starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins sumarið 2005 var beitt faglegu ráðningarferli sem stjórnað var af ráðningafyrirtæki. Fleiri umsækjendur voru um stöðuna og enginn þeirra gerði athugasemdir eftir ráðningu mína. Engar athugasemdir voru heldur gerðar opinberlega við ráðninguna. Menntun og reynslaÍ grein Bjarna kemur fram að ég starfaði áður sem framkvæmdastjóri Innra markaðssviðs Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), þó að höfundur telji það litlu skipta. Á Innra markaðssviði ESA störfuðu um 25 sérfræðingar frá 8 löndum og undir starfsemi þess féllu m.a. málefni fjármálaþjónustu og fjármálamarkaðar. Þannig stýrði ég í tæp 5 ár eftirliti með málefnum fjármagnsmarkaða á Íslandi, Noregi og Liechtenstein. Áður en ég var ráðinn sem framkvæmdastjóri hjá ESA, í opnu ráðningaferli þar sem umsækjendur gátu komið frá öllu EES-svæðinu, starfaði ég sem sérfræðingur hjá stofnuninni varðandi málefni verðbréfamarkaða og frjálsra fjármagnsflutninga. Þar á undan starfaði ég bæði sem lögfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands og sinnti m.a. verkefnum tengdum fjármálamarkaðnum og hafði aðkomu að löggjöf um þann markað. Ég hef lokið embættisprófi í lögfræði, meistaraprófi í lögfræði frá Cambridge-háskóla og MBA-gráðu frá Vlerick Leuven Gent Management School, auk þess að vera með verðbréfamiðlunarpróf. Að síðustu er það ágætur mælikvarði á þekkingu og reynslu ef ótengdir aðilar vilja greiða fyrir þjónustu. Í dag rek ég lögmannsstofu þar sem viðskiptavinir eru einkum aðilar á fjármagnsmarkaði. NiðurlagHér hefur verið svarað tilefnislausum brigslum Bjarna Torfasonar. Þeir sem vilja skrifa málefnalega um íslenskan fjármálamarkað ættu að afla sér sjálfstæðra heimilda og ekki að líta á rannsóknarskýrsluna sem trúarrit, enda liggur fyrir sú niðurstaða Hæstaréttar að skýrslan er ekki sönnunargagn (mál 561/2010). Það kann að vera erfitt fyrir Bjarna, sem var starfsmaður rannsóknarnefndarinnar.
Skoðun Hamingjan sem þjóðarverkefni: Leirársveit og hin nýja íslenska gullöld Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Viðsnúningur í rekstri og ábyrg uppbygging innviða í Hveragerði Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Njörður Sigurðsson,Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Elskar Sjálfstæðisflokkurinn Hafnarfjörð með upplýsingaóreiðu? Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Við verðum til í tengslum – og þar byrjar líka heilunin Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Gegn regnboganum: Hugmyndafræði, umburðarlyndi og frjálslyndi Hjörvar Sigurðsson skrifar