Nærri 400 kvartanir borist í ár 29. september 2011 03:45 Tryggvi Gunnarsson
Kvörtunum til umboðsmanns Alþingis hefur fjölgað verulega á árinu. Embættið hefur fengið fleiri kvartanir það sem af er ári en allt árið í fyrra, en þá bárust um 370 kvartanir. „Álagið á alla stjórnsýsluna hefur aukist verulega eftir hrun, og þar með eykst álagið hjá okkur,“ segir Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis. Embættið hefur eftirlit með því að stjórnsýsla ríkis og sveitarfélaga sé í samræmi við lög. Tryggvi segir að vel hafi gengið að afgreiða þau mál sem embættið geti ekki fjallað um, og að senda fyrirspurnir vegna þeirra mála sem umboðsmaður taki til umfjöllunar. Vandinn sé einkum sá að lengri tíma taki að ljúka þyngri málum sem embættinu berist. Í samantekt umboðsmanns kemur fram að alls hafi 353 kvartanir borist fyrstu átta mánuði ársins. Að auki hafi umboðsmaður tekið sex mál til athugunar að eigin frumkvæði. Þetta sé um 42 prósenta aukning samanborið við sama tíma í fyrra. Árið 2010 hafi embættinu borist 248 kvartanir fyrstu átta mánuði ársins, auk þess sem umboðsmaður hafi tekið upp sjö mál að eigin frumkvæði. Í ágúst lauk umboðsmaður athugun á 31 máli, þar af lauk einu með skriflegu áliti. Nýjar kvartanir í mánuðinum voru 61 talsins.- bj
Fréttir Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira