Þjófar á nóttu sem degi 22. júlí 2011 06:00 Lýður Guðmundsson ritar grein í Fréttablaðið 6.7. um bankahrunið, kollsteypuna sem íslenskir fjárglæframenn áttu veg og vanda af: „Mikilvægasta rannsókn allra tíma. Lýður, sem er einn af þessum um það bil 30 fjárglæframönnum sem áttu hlut að máli, lítur yfir farinn veg og auðvitað er bankahrunið einhverjum illum öflum að kenna sem voru að rannsaka aðdragandann að bankahruninu. Grein Lýðs er dæmigert varnarhjal manns sem telur sig vera hafinn yfir allan vafa. Hvaða tilgangi þjónar málstað hans að ráðast á Evu Joly, Þorvald Gylfason, Egil Helgason og Gunnar Andersen? Að mati Lýðs gerði hann sjálfur ekkert rangt, hvort sem það var stöðutaka gegn íslensku krónunni eða eitthvað annað eins og gríðarleg erlend skuldsetning fyrirtækisins sem hann er stjórnarformaður í. Annars er grein Lýðs athyglisverð út frá þeim staðreyndum sem hann beinir sjónarmiðum sínum ekki að. Hann víkur ekki einu einasta orði að þeirri aðgerð, sem hann átti þátt í, að ræna almenna hluthafa sparnaði sínum. Hlutafé Exista var aukið um 50 milljarða án þess að ein einasta króna væri greidd til félagsins en hluthafar beittir einhvers konar blekkingum um að hlutafé í huldufyrirtæki væri virði þessara 50 milljarða! Tilgangurinn var að sjálfsögðu yfirtaka ekki í skjóli myrkurs, heldur um hábjartan daginn! Öllum hluthöfum var boðin yfirtaka þar sem hver króna í fyrirtækinu væri greidd með einungis 2 aurum! Undirritaður flutti tillögu á hluthafafundum í ýmsum fyrirtækjum sem gekk út á takmörkun atkvæðaréttar hlutafjár. Atkvæðaréttur ætti eðlilega að vera bundinn við að hlutafé hefði raunverulega verið greitt til félagsins og að veðsett hlutafé fylgdi ekki heldur atkvæðisréttur. Með þessu hefðu braskarar sem höfðu þennan hátt á, verið gerðir valdalausir og áhrifalausir í atvinnulífi landsmanna. Ein meginástæðan fyrir bankahruninu var gegndarlaus spákaupmennska þar sem hlutafé var veðsett til þess að kaupa meira hlutafé til að komast yfir enn meiri völd og áhrif á kostnað venjulegra hluthafa sem og lífeyrissjóða sem töpuðu gríðarlegu fé. Þessir síðasttöldu aðilar höfðu greitt fyrir hlutafé með beinhörðum peningum og áttu því einir að hafa virkan atkvæðisrétt. Ef tillaga mín hefði almennt verið samþykkt hefði að öllum líkindum aldrei komið til bankahrunsins. Exista er dæmi um félag sem stýrt var með skammtímasjónarmið í huga. Greidd voru himinhá laun og aðrar sporslur til stjórnenda meðan allt virtist leika í lyndi. Sennilega var ýmsum bókhaldsbrellum beitt til að fegra hag félaga. Exista var n.k. bókhaldsfélag kringum tryggingafélagið VÍS en Samvinnutryggingar fékk afhent í fyrirgreiðsluskyni elsta tryggingafélagið, Brunabótafélag Íslands sem var í ríkiseigu. Það félag skilaði góðum hagnaði öll þau 90 ár sem það starfaði sjálfstætt auk þess sem það átti drjúgan þátt í að koma á fót og kostaði ríkulega brunavarnir í landinu. Einhverju sinni flutti Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur eftirminnilega útfararræðu yfir þjófi sem þá var nýlátinn: „Sá framliðni var sífellt starfandi, meðan aðrir sváfu var hann ætíð vakinn og sofinn yfir iðju sinni. Það sem sumir söknuðu, fannst iðulega hjá honum, enda var hann einstaklega hirðusamur um eigur annarra.“ Einhvern veginn þannig var sú útfararræða en því miður brunnu allar afburðaræður sr. Bjarna þá Lækjargata 12 brann. Þetta má allt hafa í huga þegar afrek Lýðs Guðmundssonar og annarra afreksmanna í fjármálalífinu verða metin, hvort sem það verður þeim til heiðurs eða eilífrar háðungar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun