Verkalýðsforkólfur fékk afabarn 1. maí 4. maí 2011 08:00 Það er ekki á hverjum degi sem verkalýðsforkólfur fær í hendurnar nýfætt barnabarn á baráttudegi verkalýðsins. mynd/skessuhorn „
Lítil maístjarna er fædd,“ segir Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsforkólfur á Akranesi, sem mun seint gleyma 1. maí þetta árið. Erfið staða á vinnumarkaði og yfirvofandi verkföll eru ekki ástæðan heldur lítil stúlka sem fæddist á fæðingardeildinni á Akranesi þá um morguninn. Stúlkan er þriðja barnabarnið hans en sonur Vilhjálms, Óttar Örn, og kona hans, Íris Gefnardóttir, bættu við fríðan hóp barna og barnabarna Vilhjálms og eiginkonu hans, Þórhildar B. Þórisdóttur, á sjálfan baráttudag verkalýðsins. „Þetta gerði þennan mikilvæga dag enn stórkostlegri en áður. Sennilega ánægjulegasti baráttudagur sem ég hef lifað,“ segir Vilhjálmur. „Það er ekki dónalegt að keyra tengdadóttur sína upp á fæðingardeild, fara síðan heim í tvo klukkutíma til að vinna í ræðunni, og þegar hún var um það bil að verða tilbúin hringdi síminn og mér sagt að fædd væri heilbrigð lítil stúlka. Stórkostlegt,“ segir Vilhjálmur, sem er vart kominn niður úr skýjunum eftir helgina. Vilhjálmur segir að þeirri stuttu hafi legið á, enda hafi menn ekki átt von á henni fyrr en 4. maí. „En það er öruggt að þessi er með hjartað á réttum stað og hún ákvað að flýta sér í heiminn á hátíðisdegi,“ segir Vilhjálmur og viðurkennir að hann bindi sérstakar vonir við þá stuttu. „Ætli hún verði ekki mikil baráttukona þegar hún fer að láta þessi mál til sín taka. Ef henni kippir í kynið gæti farið svo að hún taki við keflinu með einhverjum hætti,“ segir Vilhjálmur, sem er formaður Verkalýðsfélags Akraness. Vilhjálmur segir að góðu fréttirnar endi ekki hér. Von er á fjórða barnabarninu í lok mánaðarins. Þá mun yngsti sonurinn af fjórum, Allan Freyr, fjölga í hópnum. Vilhjálmur er orðinn þjóðkunnur fyrir baráttu sína fyrir réttindum verkafólks og þá ekki síst fyrir að segja hlutina eins og þeir eru. Hann hefur starfað sem formaður verkalýðsfélagsins síðan 2003 og er níundi formaður þess frá stofnun 1924. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Erlent Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Innlent Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Erlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Innlent Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Innlent Fleiri fréttir „Við lifum ekki á friðartímum“ Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Íranir án bandamanna, svimandi hátt verðlag og krísa í Kattholti Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Tveir handteknir grunaðir um eignaspjöll Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Sjá meira
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent