Guðjón Valur: Það var allt að í þessum leik Henry Birgir Gunnarsson í Halle skrifar 14. mars 2011 07:00 Guðjón Valur fékk ekki úr miklu að moða í gær og skoraði aðeins eitt mark úr hraðaupphlaupi. Fréttablaðið/Vilhelm
Hornamaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson var sleginn eftir skellinn í Halle í gær og virtist hreinlega ekki trúa því sem hafði gerst. Lið sem blómstraði síðasta miðvikudag var nánast eins og áhugamenn í gær. „Það fór nákvæmlega allt úrskeiðis sem gat farið úrskeiðis. Vörnin var léleg og við náðum engan veginn til þeirra. Þeir skutu að vild. Það var engin vörn og engin markvarsla. Það var slæm ákvörðunartaka í sókn. Það var allt að í þessum leik,“ sagði Guðjón Valur en íslenska liðið var ekki tilbúið í slaginn er hann byrjaði. Þó svo talað hefði verið um að byrja af grimmd var engin stemning í íslenska liðinu sem átti hreinlega ekki möguleika frá fyrstu mínútu. „Mér fannst við vera vel stemmdir fyrir leik en svo kom annað í ljós. Þessi leikur var í raun spegilmynd af leiknum heima nema núna tóku þeir okkur í bakaríið. Það er svo sorglegt að lenda í þessu því við erum með reynslumikið lið sem á ekki að láta svona hluti gerast. Auðvitað voru menn meiddir og við vorum þunnskipaðir, það verður að segjast eins og er. Engu að síður er þetta langt frá því að vera ásættanlegt.“ EM-draumurinn lifir enn þrátt fyrir tapið en örlög íslenska liðsins eru ekki lengur algjörlega í þeirra höndum. Guðjón var ekki á því að leggja niður vopnin þó svo allt hafi farið úrskeiðis í gærkvöldi. „Við vinnum næstu tvo leiki og náum að hafa betur í innbyrðisviðureignum gegn Austurríki. Þá erum við komnir áfram. Þetta er ekki flókið. Ef við þurfum að vinna Austurríki stórt þá gerum við það. Við ætlum ekki að gefast upp heldur fara á EM,“ sagði Guðjón Valur ákveðinn.
Handbolti Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Fótbolti Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira