Ljónin lögðu refina og komust upp í þriðja sætið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. mars 2011 19:40 Ólafur Stefánsson spilaði vel í kvöld. Nordic Photos / Bongarts
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Rhein-Neckar Löwen, hafði betur í baráttunni við Dag Sigurðsson, kollega sinn hjá Füchse Berlin, þegar að liðin mættust í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Leiknum lauk með 33-32 sigri Löwen. Úrslitin þýða að liðin hafa sætaskipti í deildinni og er Löwen nú komið upp í þriðja sætið. Füchse Berlin er í því fjórða en bæði lið eru með 39 stig. Löwen á þó leik til góða. Gestirnir frá Berlín voru sterkari í fyrri hálfleik og náðu mest fjögurra marka forystu í stöðunni 14-10. En Löwen barði frá sér og náði að jafna metin áður en flautað var til hálfleiks, 16-16. Heimamenn sigu svo fram úr í síðari hálfleik og var það ekki síst að þakka markvörslu Slawomir Szmal á lokakaflanum. Berlínarbúar náðu að ógna forystu Löwen á lokamínútunum en allt kom fyrir ekki. Ólafur Stefánsson átti einnig stórleik í liði Löwen og skoraði alls sex mörk í leiknum. Róbert Gunnarsson fékk lítið að spila og komst ekki á blað. Hann fiskaði þó eitt víti. Guðjón Valur Sigurðsson kom ekki við sögu. Alexander Petersson skoraði fjögur mörk fyrir Füchse Berlin í leiknum. Hamburg er á toppi deildarinnar með 47 stig og fjögurra stiga forystu á Kiel sem er í öðru sæti.
Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira