Hafna ósk ríkisstjórnarinnar um friðlýsingu Gjástykkis 17. mars 2011 19:00
Sveitarfélögin þrjú, sem Gjástykki er í, hafna öll ósk ríkisstjórnarinnar um algera friðlýsingu. Oddviti Mývetninga kveðst ekki hafa orðið var við að heimamenn vilji friðlýsa svæðið. Mývetningar sýndu það fyrir rétt rúmum 40 árum að þeir taka umhverfisvernd alvarlega þegar þeir sprengdu sítflu í Laxá. Þeir virðast hins vegar ekkert spenntir fyrir því að friðlýsa allt Gjástykki. Gjástykki er eitt af þeim háhitasvæðum á heiðunum norðan Mývatns sem rætt er um að virkja fyrir stóriðju. Svæðið er í þremur sveitarfélögum, Norðurþingi, Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi, og hafa þau nú öll lýst yfir andstöðu við ósk ríkisstjórnarinnar um algera friðlýsingu en vilja standa við þriggja ára gamalt skipulag, sem gerir ráð fyrir að tvö prósent Gjástykkis verði tekin undir orkuvinnslu. Dagbjört Bjarnadóttir, oddviti Skútustaðahrepps, segir menn óttast að ef Gjástykki verði friðlýst þá fari skipulagsvaldið frá sveitarfélögunum. Menn spyrji ennfremur hvað fylgi friðlýsingu. Forystumenn á Húsavík hafa fullyrt opinberlega að krafa ríkisstjórnarinnar um algera friðlýsingu Gjástykkis hafi þann megintilgang að koma í veg fyrir álver. En hvað segja heimamenn, eins og Mývetningar, sem sennilega þekkja svæðið betur en flestir aðrir? Dagbjört er spurð hvort einhverjar kröfur eða frumkvæði hafi komið frá heimamönnum um friðlýsingu Gjástykkis: "Nei, það hef ég aldrei heyrt. Og reyndar ekkert mikið í almennri umræðu hér. Ég hef ekki orðið vör við það." -Hvaðan kemur þá þessi hugmynd, - hvar verður hún til, - að friðlýsa Gjástykki, ef ekki hér? "Hugmyndin kemur frá náttúruverndarsamtökum og umhverfisráðherra," svarar Dagbjört.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Sjá meira