Nemendur úr Verzló með hæstu einkunn 20. janúar 2011 06:00 Nemendur Verzló hafa mælst með hæstu meðaleinkunn í könnun HÍ síðustu þrjú skólaár.fréttablaðið/gva
Þeir nemendur Háskóla Íslands (HÍ) sem koma úr Verzlunarskólanum mældust með hæstu meðaleinkunn í úttekt HÍ á nemendum fimm framhaldsskóla síðustu þrjú ár. Skólaárið 2009 til 2010 var meðaleinkunn þeirra 4.115 nemenda úr Verzlunarskólanum 7,04. Nemendur frá Menntaskólanum Hraðbraut, sem voru 692 talsins, mældust með lægstu meðaleinkunnina, 6,35. Hinir framhaldsskólarnir í úttektinni voru Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti og Fjölbrautaskólinn við Ármúla. Könnunin var gerð vegna fyrirspurnar menntamálaráðuneytisins í tengslum við úttekt Ríkisendurskoðunar og menntamálanefndar Alþingis á fjármálum Menntaskólans Hraðbrautar. Meðaleinkunnir nemenda innan deilda sýna að nemendur úr Verzlunarskólanum voru oftast með hæstu meðaleinkunn, eða í 11 deildum af 25. Nemendur Hraðbrautar voru oftast með lægstu meðaleinkunn, eða í 8 deildum. Þeir voru þó með hæstu meðaleinkunn í 7 deildum. Nemendur úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla voru með lægstu einkunn í 7 deildum og hæstu í tveimur. Ólafur Haukur Johnson, skólastjóri og eigandi Menntaskólans Hraðbrautar, segir tölurnar lítt marktækar. „Úrtakið er lítið. Margir nemendur okkar fóru í námsgreinar þar sem kröfur um háar einkunnir eru minni. Það er til að mynda óvenju hátt hlutfall í læknisfræði, þar sem einkunnirnar eru lægri en til dæmis í félagsfræði,“ segir Ólafur. Einungis 3 prósent nemenda Hraðbrautar völdu Félags- og mannvísindadeild, en þar mældust þeir með hæstu meðaleinkunn, 6,99. 5 prósent þeirra völdu læknisfræði og voru þar með næsthæstu meðaleinkunn, 8,21. 6 prósent fóru í hjúkrunarfræði og voru þeir nemendur Hraðbrautar einnig með næsthæstu meðaleinkunn í deildinni, 7,03. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira