Þráinn styður ekki fjárlög að óbreyttu Þorbjörn Þórðarson skrifar 9. ágúst 2011 18:21 Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri grænna.
Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri grænna, vill að fundin verði sanngjörn lausn á fjármögnun Kvikmyndaskóla Íslands og segist að óbreyttu ekki styðja fjárlög nema það verði gert. Hann segir æskilegt að fjármögnun skólans verði tryggð. Tæknilega situr ríkisstjórnin með eins atkvæðis meirihluta eftir að nokkrir þingmenn Vinstri grænna sögðu sig úr þingflokknum fyrr á þessu ári. Því gæti stuðningur Þráins við fjárlögin og þar með ríkisstjórnina skipt miklu máli. „Þetta var skilið eftir óleyst og í lausu lofti af menntamálaráðherra þegar hún fór í frí. En Svandís (Svavarsdóttir, starfandi menntamálaráðherra innsk.blm) hefur unnið mikið til að finna lausn á þessu. Og ég held að lausnin sé í sjónmáli. Hitt er annað mál ef að menn gefast upp á að finna lausn á þessu þá sé ég enga ástæðu til að styðja fjárlögin," segir Þráinn. Þráinn segir að það þýði ekki að sjálfgefið sé að ekki sé þingstyrkur fyrir fjárlögum. „Það er enginn sem segir að þeir sem að fóru frá borði, að þeir munu ekki styðja fjárlög næsta árs. Það er ekki sjálfgefið," segir Þráinn. „Ef maður stillir þessu ískalt upp í stjórn og stjórnarandstöðu þá situr stjórnin með eins atkvæðis meirihluta, eins og við vitum. En ég er ekki að rjúka upp út af þessu máli. Ég er búinn að sitja rólegur yfir því að menntamálaráðherra og stjórnin gangi á hlut kvikmyndagerðarinnar í landinu miklu meira en nokkurrar af hinum skapandi greinum. Einhvern tímann gerist það að mælirinn fullur og maður segir hingað og ekki lengra," segir Þráinn Bertelsson. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fleiri fréttir Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Sjá meira