Innlent

Dæmdur til að greiða um eina og hálfa milljón

Jón Bjarki Magnússon blaðamaður á DV
Jón Bjarki Magnússon blaðamaður á DV mynd/365
Jón Bjarki Magnússon, blaðamaður á DV, var í dag dæmdur til að greiða konu 700 þúsund krónur í miskabætur vegna ærumeiðandi ummæla sem birtust í DV í september á síðasta ári. Um var að ræða umfjöllun blaðsins um nágrannaerjur í Garðabæ.

Þrettán ummæli í greininni voru dæmd dauð og ómerk og DV var gert að birta forsendur og niðurstöðu dómsins í næsta tölublaði DV.

Þá þarf Jón Bjarki að greiða konunni 750 þúsund krónur í málskostnað.

Í blaðinu var meðal annars vísað í dóm sem konan hlauti árið 1989. Í dómi héraðsdóms segir: „Hér er um 32 ára og 23 ára gömul mál að ræða sem ósmekklegt er að draga inn í umfjöllun málsins um stefnanda.“

Þá segir einnig að við ákvörðun bóta sé einnig litið til þess að Jón Bjarki virðist hafa tvíeflst í fréttaflutningi sínum eftir að hjónin kröfðust afsökunar og leiðréttinar á ummælunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×