Saman á sviði í fyrsta sinn 14. maí 2011 10:00 samrýmdir bræður Bræðurnir Gunnlaugur og Ólafur Egill Egilssynir stíga saman á svið í fyrsta sinn í verkinu Klúbburinn. fréttablaðið/stefán
Bræðurnir Gunnlaugur og Ólafur Egill Egilssynir stíga í fyrsta sinn saman á svið í leik- og dansverkinu Klúbburinn. Aðeins eitt og hálft ár skilur bræðurna að. Bræðurnir Gunnlaugur og Ólafur Egill Egilssynir stíga í fyrsta sinn saman á svið í leik- og dansverkinu Klúbburinn sem verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu á Listahátíð í Reykjavík 3. júní. Leikstjórn og dans eru eftir Gunnlaug og meðlimi Klúbbsins, þá Ólaf Egil, Björn Borko Kristjánsson, Björn Thors, Huginn Þór Arason og Ingvar E. Sigurðsson. „Við erum í mismunandi listgreinum en þær eiga margt sameiginlegt,“ segir Gunnlaugur um samstarf þeirra bræðra. Hann er dansari við konunglega ballettinn í Stokkhólmi á meðan Ólafur Egill er leikari. Aðeins eitt og hálft ár skilur bræðurna að og er Ólafur sá eldri. Aðspurður segir Gunnlaugur að samstarf þeirra bræðra á æfingum hafi verið gott og engar erjur átt sér stað. „Maður verður að vera fagmannlegur þegar maður stígur inn í sjálft æfingaferlið. Þá verður maður að sleppa þessum týpísku systkinaerjum, ég gæti ekki gert hinum Klúbbmeðlimunum það. Enda erum við mjög kærleiksríkir bræður og það er ekki mikið um ágreining okkar á milli,“ segir hann. Ólafur Egill segir það frábært að standa á sviði með bróður sínum Gunnlaugi í fyrsta sinn. „Við vorum samrýmdir bræður og lékum okkur oft saman. Þetta er eðlilegt framhald af því og bara mjög huggulegt.“ Hann viðurkennir að litli bróðir sé duglegur við að skipa honum fyrir á æfingum en það sé bara allt í lagi. „Hann er búinn að vera að dansa hjá Konunglega sænska ballettinum og fór út til að læra klassískan ballett þegar hann var sautján ára, þannig að hann hefur járnaga.“ Klúbburinn fjallar um karlaklúbb og hóp listamanna sem elur með sér draum um að afhjúpa æðsta leyndarmál listarinnar. Gunnlaugur segir að flestir leikararnir hafi enga reynslu af dansverkum en allir hafi þeir sína nálgun og eigi auðvelt með líkamlega tjáningu, þar á meðal bróðir hans. „Það er líka gaman að vinna með hreyfingar sem eru kannski ekki skólaðar. Við erum öll með okkar hreyfingar og ef maður reynir að fá þær út geta þær verið jafnspennandi og eitthvað sem er lært og búið að vinna með í mörg ár,“ segir hann. Klúbburinn verður sýndur 3. og 4. júní á Listahátíð í Reykjavík og vikuna á eftir verða fjórar sýningar til viðbótar. freyr@frettabladid.is
Lífið Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Sahara Ray látin Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira