Matur

Frystur skötuselur með grásleppuhrognum

Örþunnar skötuselssneiðarnar og gljáandi grásleppuhrognin harmónera vel við grænan selleríkarapísinn.
Örþunnar skötuselssneiðarnar og gljáandi grásleppuhrognin harmónera vel við grænan selleríkarapísinn.

Skötuselsþynnur með grásleppuhrognum frá Borgarfirði eystri, grænu selleríi og íslensku vori.

Skötuselsþynnur

Fáið ferskan og flottan skötusel, snyrtið og frystið, og skerið í eins þunnar sneiðar og mögulegt er. Kryddið með salti.

Grásleppuhrogn

Best er að rúnta niður að höfn og sjá hvort þið fáið góðhjartaðan grásleppusjómann til að gefa ykkur fersk hrogn. Þegar heim er komið eru þau tekin úr hrognasekknum, skoluð og söltuð með 20 g af salti á móti 1 kg af hrognum. Yndislegt alveg hreint!

Selleríkrapís

1 kg skrælt og maukað sellerí

2 l vatn

200 g glúkósasíróp

200 g sykur

8 blöð matarlím

Leggið matarlím í bleyti. Sjóðið saman vatn, sykur og glúkósasíróp, bætið matarlími saman við og kælið niður. Blandið sellerímauki og sykurlegi saman og smakkið til með örlitlum sítrónusafa og salti.

Annað

Tínið til jurtir og blóm sem finnast í garðinum og næsta nágrenni. Ég notaði skessujurt, hvönn, morgunfrú, skjaldfléttu og sólberjabrum. Gætið þess þó að skola jurtirnar vel áður en þær eru bornar fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×