Kiel enn með fullt hús stiga - Füchse Berlin í annað sætið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. desember 2011 18:17 Nordic Photos / Getty Images
Kiel er enn með fullt hús stiga eftir sextán umferðir í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta en í dag lagði liðið Þýskalandsmeistara Hamburg, 30-25. Kiel hefur haft fáheyrða yfirburði í deildinni í vetur og það breyttist ekki í dag. Staðan í hálfleik var 15-12, Kiel í vil, en þó var staðan jöfn þegar rúmar átta mínútur voru til leiksloka, 25-25. Þá skelltu leikmenn Kiel í lás, skoruðu fimm síðustu mörk leiksins og tryggðu sér þar með sigurinn. Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir Kiel en þjálfari liðsins er Alfreð Gíslason. Momir Ilic var markahæstur með tíu mörk, þar af átta af vítalínunni. Füchse Berlin vann góðan sigur á Grosswallstadt, 29-26, á útivelli. Staðan í hálfleik var 14-12, Berlínarliðinu í vil. Alexander Petersson fór á kostum með Füchse Berlin og var markahæstur með átta mörk. Dagur Sigurðsson er þjálfari liðsins. Sverre Andreas Jakobsson lék í vörn Grosswallstadt. Kári Kristjáns Kristjánsson skoraði tvö mörk þegar að lið hans, Wetzlar, tapaði fyrir Lübbecke á útivelli, 28-24. Þá skoraði Rúnar Kárason fjögur mörk fyrir Bergischer sem tapaði fyrir Flensburg á heimavelli, 36-25. Kiel er semsagt á toppnum með 32 stig en Füchse Berlin komst í annað sætið með sigrinu í dag. Liðið er með 25 stig og þriggja stigaforystu á Hamburg. Wetzlar er í tólfta sæti með tólf stig. Grosswallstadt í því fjórtánda með níu og Bergischer í fimmtánda með átta stig.
Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Sjá meira