Þrír leikir í beinni á Stöð 2 Sport í dag Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. janúar 2011 13:45 Mynd/Valli
Stöð 2 Sport mun vera með þrjá leiki á HM í handbolta í beinni útsendingu í dag auk ítarlegrar umfjöllunar um viðureign Íslands og Frakklands. Lokaumferð milliriðlakeppninnar fer fram í dag en nú þegar er ljóst hvaða lið hafa tryggt sér sæti í undanúrslitum keppninnar. Spánn og Frakkland fara áfram úr milliriðli 1 og Danmörk og Svíþjóð úr milliriðli 2. Eftir leiki dagsins kemur í ljós hvernig liðin raðast saman í undanúrslitum. Það er hins vegar hörð barátta um sæti í undankeppni Ólympíuleikanna en liðin í 2.-7. sæti á HM komast í hana. Það er því eftirsóknarvert að tryggja sér þriðja sæti milliriðlakeppninnar og spila þannig um 5.-6. sætið. Fjórða sætið veitir rétt til að spila um 7.-8. sætið en sá leikur er úrslitaleikur um síðasta sætið í undankeppninni. Klukkan 15.05 hefst útsending frá leik Þýskalands og Noregs en Þjóðverjar eiga enn möguleika á þriðja sæti milliriðilsins. Þeir verða þó að vinna Noreg og stóla á hagstæð úrslit í öðrum leikjum. Klukkan 17.05 hefst svo útsending frá viðureign Króatíu og Pólland sem er hreinn úrslitaleikur um þriðja sætið í milliriðli 2. Pólverjum dugir jafntefli en liðið er með fjögur stig en Króatía þrjú. Klukkan 18.45 hefst upphitun fyrir leik Íslands og Frakklands sem hefst klukkutíma síðar. Ísland mun með sigri tryggja sér þriðja sæti riðilsins en annars þurfa strákarnir að stóla á hagstæð úrslit úr öðrum leikjum. Í þættinum verður einnig fylgst með gangi mála í leik Ungverjalands og Spánar auk þess sem að dregið verður í bikarkeppni HSÍ. Dagskráin í dag: Kl. 15.05 Þýskaland - Noregur Kl. 17.05 Króatía - Pólland Kl. 18.45 Upphitun fyrir Ísland - Frakkland Kl. 19.45 Ísland - Frakkland Úrslit, staða og næstu leikir .
Mest lesið DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Fótbolti Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Enski boltinn Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Tveir öflugir Spánverjar æfðu ekki með restinni af liðinu Fótbolti Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé Íslenski boltinn Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira