Arnór lyfti bikarnum á Parken Henry Birgir Gunnarsson skrifar 21. maí 2011 14:44 Meistararnir fagna í dag.
Þeir Arnór Atlason og Snorri Steinn Guðjónsson urðu í dag danskir meistarar í handknattleik með liði sínu AGK. Kaupmannahafnarliðið lagði þá Bjerringbro-Silkeborg, 30-21, í öðrum úrslitaleik liðanna og rimmuna þar með 2-0. 36 þúsund manns voru á Parken í dag og settu heimsmet í aðsókn á handboltaleik í heiminum. Arnór og Snorri áttu báðir mjög góðan leik fyrir AGK. Arnór stýrði leik AGK lengstum og átti fjölda stoðsendinga, skoraði fimm mörk og var markahæstur. Snorri náði líka að skora fjögur mörk þó svo hann hafi leikið minna í leiknum. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir AGK því Kasper Hvidt fékk rautt spjald eftir aðeins rúmlega þriggja mínútna leik. Hann reyndi þá að stöðva hraðaupphlaup með því að hlaupa út úr teignum. Hann lenti á sóknarmanni Bjerringbro og lítið annað hægt en að henda Hvidt í sturtu. AGK þurfti ekki að örvænta mikið því í hans stað Norðmaðurinn Steinar Ege sem er síst slakari markvörður. Hann átti líka eftir að sanna það með því að verja 20 skot í leiknum. Arnór Atlason var í byrjunarliði AGK á miðjunni og stýrði leik liðsins vel. Var duglegur að opna fyrir félaga sína, koma boltanum á línuna en skotin gengu þó ekki nógu vel. AGK skrefinu á undan allt frá upphafi og Niklas Landin hélt Bjerringbro hreinlega inn í leiknum með frábærri markvörslu. Varnarleikur AG var einnig svakalega sterkur og gestirnir voru í verulegum vandræðum með finna opin skot. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði úr víti í hálfleiknum og spilaði síðustu mínútur hálfleiksins. Leikmenn Bjerringbro hresstust nokkuð í síðari hálfleik enda höfðu þeir engu að tapa og allt að vinna. Þegar 15 mínútur lifðu leiks var munurinn kominn niður í fjögur mörk, 21-17. Snorri Steinn átti frábæra innkomu í lið AGK þegar Bjerringbro gat minnkað muninn í þrjú mörk og var manni færri. Þá skoraði Snorri tvö glæsileg mörk í röð og hélt gestunum í hæfilegri fjarlægð. Eftir þessa innkomu Snorra var allur vindur úr Bjerringbro og AGK landaði öruggum sigri.Það er mögnuð stemning á Parken í Kaupmannahöfn þessa stundina þar sem Íslendingaliðið AGK getur tryggt sér danska meistaratitilinn í handbolta með sigri á Bjerringbro-Silkeborg. Það stefnir allt í sigur AGK sem hefur leikið vel og leiðir í hálfleik, 14-7. 38 þúsund manns eru á vellinum og það er því búið að setja heimsmet í aðsókn á handboltaleik í heiminum. Kasper Hvidt fékk rautt spjald eftir aðeins rúmlega þriggja mínútna leik. Hann reyndi þá að stöðva hraðaupphlaup með því að hlaupa út úr teignum. Hann lenti á sóknarmanni Bjerringbro og lítið annað hægt en að henda Hvidt í sturtu. AGK þurfti ekki að örvænta mikið því í hans stað Norðmaðurinn Steinar Ege sem er síst slakari markvörður. Arnór Atlason var í byrjunarliði AGK á miðjunni og stýrði leik liðsins vel. Var duglegur að opna fyrir félaga sína, koma boltanum á línuna en skotin gengu þó ekki nógu vel. AGK skrefinu á undan allt frá upphafi og Niklas Landin hélt Bjerringbro hreinlega inn í leiknum með frábærri markvörslu. Varnarleikur AG var einnig svakalega sterkur og gestirnir voru í verulegum vandræðum með finna opin skot. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði úr víti í hálfleiknum og spilaði síðustu mínútur hálfleiksins. AGK er með pálmann í höndunum og ef allt er eðlilegt mun Arnór Atlason, fyrirliði AGK, lyfta bikarnum á eftir.
Handbolti Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira