Arnór: Algjör draumur að lyfta bikarnum á Parken Henry Birgir Gunnarsson skrifar 21. maí 2011 17:44 Arnór lyftir hér bikarnum undir kampavínsregni. "
Ég brosi bara hringinn. Þetta er búinn að vera geggjaður dagur. Ég held ég eigi aldrei eftir að upplifa það aftur að spila handbolta fyrir framan 36 þúsund manns," sagði afar kátur fyrirliði AGK, Arnór Atlason, í samtali við Vísi. "Það var eins gott að við unnum þetta og það með stæl. Níu marka sigur segir ansi margt og undirstrikar að við erum bestir," sagði Arnór sem fékk það öfundsverða hlutverk að lyfta bikarnum í heimsmetsleiknum. "Það var helvíti gaman. Ég er mikill stuðningsmaður FCK ó fótboltanum og hef farið á Parken að sjá þá lyfta titlum fyrir framan fullt hús. Ég hef alltaf öfundað þá af því og það var því draumur að fá að lyfta bikarnum á þessum stað núna. Þetta gleymist aldrei." Arnór lék virkilega vel í dag, var markahæstur með 5 mörk þó svo mörg skot hefðu farið forgörðum framan af. Hann gaf óteljandi stoðsendingar og skoraði fín mörk. "Það er ánægjulegt að fá traustið frá þjálfaranum. Ég var í því að skjóta Landin í stuð framan af en hélt traustinu og vann mig inn í leikinn. Þegar upp er staðið er ég mjög sáttur," sagði Arnór en AGK tapaði aðeins einum leik í allan vetur. "Þó svo við séum með gott lið var þetta ekki auðveldur vetur. Við erum með algjörlega nýtt lið og pressan er gríðarleg á árangur. Þetta hefur gengið upp en var alls ekki auðvelt," sagði Arnór og var rokinn í að fagna með félögum sínum en gleðin á eflaust eftir að vera við völd langt fram á nótt.
Handbolti Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Björgvin Karl og liðsfélagar hans í þriðja sætinu eftir fyrsta dag Sport Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira