Arnór: Það bíða allir eftir því að við töpum leik Henry Birgir Gunnarsson skrifar 5. september 2011 06:00 Arnór fékk aftur harpix á puttana um helgina.mynd/ole nielsen
Landsliðsmaðurinn Arnór Atlason spilaði í fimm mínútur um helgina í öruggum sigri Danmerkurmeistara AGK á Skjern. Þetta var fyrsti leikur Arnórs með liðinu á þessari leiktíð en hann hefur ekkert spilað síðan hann lék með landsliðinu í sumar. Arnór tognaði illa á læri í upphafi æfingatímabilsins og hefur verið talsvert lengi frá síðan. „Þetta er búið að vera bölvað basl. Ég æfði aðeins tvisvar fyrir leikinn og gerði allt til þess að vera til taks. Það var kannski ekki mjög skynsamleg ákvörðun að spila en þetta slapp. Það var æðislegt að komast aftur á völlinn og gott að vinna Skjern örugglega en það er eitt af betri liðunum í deildinni og þeir segjast vera orðnir svo góðir. Hafa aðeins verið að rífa kjaft og það var fínt að þagga niður í þeim,“ sagði Arnór. Jafnt var í tölum í fyrri hálfleik en AGK tók völdin í síðari hálfleik og vann öruggan sigur, 28-20. Arnór gerir ráð fyrir því að Bjerringbro veiti AGK mesta keppni í vetur en Skjern, Álaborg og Kolding komi þar á eftir.‘ Arnór segir að það sé frábær stemning í kringum danska ofurliðið sem fyrr. Fram undan er spennandi þáttaka í Meistaradeildinni og athygli fjölmiðla á liðinu mikil sem fyrr. „Það var stútfullt hús og stemning. Allur hópurinn er tilbúinn í slaginn og menn bíða spenntir eftir Meistaradeildinni. Það eru margar sterkar týpur í þessu liði. Sigurvegarar þannig að það er mikil keppni og enginn slakar á. Við megum það ekki heldur enda bíða allir eftir því að við töpum leik. Liðin á Jótlandi tala fjálglega um að þau ætli að vinna okkur og það er bara frábært.“ Alls eru fjórir Íslendingar í liði AGK í vetur. Arnór og Snorri Steinn Guðjónsson voru þar fyrir og í sumar gengu þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Ólafur Stefánsson í raðir liðsins. „Það er frábært að fá þá. Þeir eru fyrst og fremst heimsklassaleikmenn sem styrkja liðið. Óli hefur ekkert verið með en Gaui gefur okkur 5-6 aukamörk úr hraðaupphlaupum í leik, sem er snilld. Þeir styrkja liðið mikið og gaman að fá þá,“ sagði Arnór Atlason.
Handbolti Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira