Las það í bréfi frá Þóri að hún væri ekki lengur í landsliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. október 2011 22:45 Karoline Dyhre Breivang (8) með Marit Breivik (fyrrum þjálfara) og Þórir Hergeirssyni í leik norska landsliðsins á HM 2007. Mynd/AFP
Karoline Dyhre Breivang er einn sigursælasti leikmaður norska kvennalandsliðsins í handbolta og á að baki 264 landsleiki fyrir Noreg. Þórir Hergeirsson, þjálfari norska liðsins, ætlar hinsvegar ekki að veðja á hana á HM í Brasilíu í desember en það hefur vakið athygli að Breivang fékk fyrst að vita það í bréfi frá Þóri að hún væri búin að missa sæti sitt í landsliðinu. „Þetta hljómar harðneskjulega en þetta er venjan hjá okkur. Við þurfum að tilkynna úrtakshóp fyrir HM og leikmenn fengu að vita það bréflega hvort þeir væru með eða ekki. Það er alltaf möguleiki að koma inn fyrir næsta stórmót," útskýrir Þórir Hergerisson í viðtali við Dagbladet. Karoline Dyhre Breivang er orðin 31 árs gömul en hún hefur unnið Ólympíugull og fjóra Evrópumeistaratitla. Hún hefur hinsvegar aldrei orðið heimsmeistari en vann silfur á HM 2007 og brons á HM 2009 „Ég hef aldrei verið örugg með sæti mitt í liðinu ekki einu sinni þegar allir vpru að tala um að ég væri pottþétt valin. Ég bíð alltaf spennt eftir því hvort ég fái að vera með," sagði Breivang við Dagbladet en af hverju ætti Þórir að velja hana. „Ég er góð að leysa þau verkefni sem ég fæ, lítil sem stór. Ég vinn vel fyrir liðið og er góð í vörn. Ég er sterk í návígum og ég er góð að spila aðra leikmenn uppi," sagði Breivang. Breivang var í lykilhlutverki með norska liðinu Larvik í vor þegar liðið tryggði sér sigur í Meistaradeildinni. „Karo" hefur tekið mjög fagmannlega á þessu mál. Það er búið að vera frábært að vinna með henni. Það er líka ánægjulegt að sjá hversu vel hún er að spila í haust," sagði Þórir en mun hann velja hana vegna allra forfallanna í norska hópnum í haust. „Leikmenn sem ekki voru valdir fengu svona bréf. Fjöldi leikmanna fer eftir fjármagninu sem við höfum. Þetta er vanalegt ferli. Stundum þurfa þjálfarar að setjast niður, taka nýja stefnu, og viðurkenna að það þarf að gera eitthvað til að bæta liðið." sagði Þórir.
Handbolti Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Fótbolti Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn Sædís skoraði og ótrúleg ferna liðsfélaga Hildar Fótbolti Brynjar Ingi sigldi öruggu sæti í höfn Fótbolti Fleiri fréttir Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Sjá meira