Þjálfarar AG sögðu upp störfum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. október 2011 13:27 Klavs-Bruun í leik með danska landsliðinu árið 2009. Nordic Photos / AFP
Það gengur mikið á hjá danska ofurliðinu AG Kaupmannahöfn en í dag sögðu þjálfararnir Klavs-Bruun Jörgensen og Sören Hersiknd upp störfum hjá félaginu. Á föstudaginn var sex starfsmönnum á skrifstofu félagsins var sagt upp störfum en 25 manna starfslið hefur unnið fyrir skartgripasalann Jesper „Kasi" Nielsen, eiganda AG. Í dag sögðu svo þjálfararnir Jörgensen og Herskind upp störfum en þeim hafði verið boðið að vera áfram hjá félaginu sem þeir voru samningsbundnir til næsta vors. Þeir töldu hins vegar óásættanlegt að vera undir stjórn Magnus Andersson sem ráðinn var yfirmaður íþróttamála hjá AG fyrir þessa leiktíð. Guðmundur Guðmundsson gegndi því starfi áður en hann tók við liði Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi. Þeir Jörgensen og Herskind ákváðu því í dag að segja upp störfum og hafa tekið hatt sinn og staf - sem þýðir að Magnus Anderson mun stjórna liði AG í Kaupmannahöfn á morgun þegar að liðið á leik í dönsku úrvalsdeildinni, sem og gegn Pick Szeged í Meistaradeild Evrópu um helgina. Í sumar hugðust forráðamenn AG ráða Ola Lindgren, fyrrum þjálfara Löwen, til starfa hjá AG en ekkert varð úr þeirri ráðningu. En nú er ekki ólíklegt að Ola Lindgren, sem Nielsen rak frá Löwen á sínum tíma, verði ráðinn aðstoðarþjálfari hjá Magnus Andersson. Íslendingarnir Snorri Steinn Guðjónsson, Arnór Atlason, Guðjón Valur Sigurðsson, Ólafur Stefánsson og Ólafur Guðmundsson eru allir á mála hjá AG en sá síðastnefndi er nú í láni hjá Nordsjælland.
Handbolti Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Fótbolti Fleiri fréttir Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Sjá meira