Karabatic hafði betur gegn Kiel í Þýskalandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. október 2011 18:40 Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel. Nordic Photos / Getty Images
Montpellier vann sterkan útisigur á þýska stórliðinu Kiel í Meistaradeild Evrópu í dag, 24-23, með frábærri frammistöðu í seinni hálfleik. Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel og Aron Pálmarsson leikur með liðinu. Hann kom þó ekkert við sögu vegna meiðsla í dag. Nicola Karabatic var lengi á mála hjá Kiel en leikur í dag með Montpellier. Hann skoraði þrjú mörk í dag en markahæstur Frakkanna var William Accambray með átta mörk. Filip Jicha skoraði sex mörk fyrir Kiel. Kiel byrjaði leikinn mjög vel og náði snemma 5-2 forystu. Frakkarnir náðu þó að jafna leikinn stuttu síðarn en heimamenn náðu þó undirtökunum aftur og höfðu fjögurra marka forystu hálfleik. Leikmenn Montpellier bitu þó frá sér í síðari hálfleik og höfðu forystu, 22-20, þegar tæpar tíu mínútur voru til leiksloka. Kiel náði þó að jafna metin, 22-22, og voru lokamínúturnar æsispennandi. Frakkarnir komust yfir, 23-22, þegar um þrjár mínútur voru eftir en Kiel náði svo að jafna metin þegar tæp mínúta var eftir. Accambray kom Montpellier aftur yfir þegar 20 sekúndur voru eftir og missti Kiel svo boltann í næstu sókn. Úrslitin voru því ráðin. Markverðir beggja liða, þeir Thierry Omeyer hjá Kiel og Primoz Prost hjá Montpellier átti báður stórleik í dag. Bæði lið unnu leiki sína í fyrstu umferð riðlakeppninnar en Montpellier og AG Kaupmannahöfn eru nú bæði með fjögur stig í efsta sæti riðilsins.
Mest lesið Mun aldrei jafna sig á tapinu gegn Íslandi á EM: „Var mér mjög erfitt“ Fótbolti Albert svarar fyrir sig: Með skýr skilaboð til mannsins sem reif treyju hans Fótbolti Algjör ringulreið: Leik frestað hjá Alfons og Stefáni eftir ótrúlega uppákomu Fótbolti Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Handbolti Nike semur við Baldvin: „Get nú kallað áhugamálið mitt vinnuna mína“ Sport Neyðist til að hætta eftir margra mánaða greiningarferli Fótbolti McGregor mætti óvænt og barðist í Dublin Sport Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Íslenski boltinn Rifnar treyjur og rauð spjöld: Albert og Suslov sáu rautt eftir að upp úr sauð Fótbolti Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður Körfubolti Fleiri fréttir Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Díana Dögg innsiglaði deildarmeistaratitil í toppslag Stjarnan og Hörður berjast um sæti í Olís deildinni Viktor með flottan leik og Börsungar halda áfram að valta yfir deildina Lið Donna byrjar úrslitakeppnina vel Bjarki í úrslitaeinvígið í Ungverjalandi Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Orri öflugur en staða Sporting viðkvæm Elín Klara markahæst og undanúrslit blasa við Naumt forskot hjá Janusi og félögum Uppgjörið: Haukar - Afturelding 32-24 | Hafnfirðingarnir sendu Aftureldingu í sumarfrí Óttaðist endalokin fyrir þrettán árum Fram skildi ÍR eftir og mætir Val í undanúrslitum Stjarnan og Grótta spila upp á sæti í efstu deild Haukar áfram í undanúrslit en Akureyringar í sumarfrí Birgir markahæstur í óvæntum sigri Danir að þvælast fyrir viðræðum HSÍ við Snorra og Arnór? „Styttist í fréttir“ Í afar erfiðum málum eftir stórt tap Stjarnan svaraði fyrir sig og knúði fram oddaleik Elín Klara skoraði þrjú mörk og Sävehof er komið yfir Íslendingaliðin undir í einvígum sínum Skór Rúnars upp í hillu Eduard Koksharov fallinn frá Markahæsti leikmaður HK til Fram Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Var eitrað fyrir leikmönnum Sporting? „Þetta var einhver holræsislykt“ Fékk starfið sem Guðmundur var orðaður við „Höfum dílað á jákvæðan hátt við allt sem upp hefur komið“ „Vorum náttúrulega að mæta Íslandsmeisturunum“ Einar með stórleik er Afturelding knúði fram oddaleik Sjá meira