Patrekur: Vil vinna til verðlauna á EM eða HM Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. ágúst 2011 12:00 Patrekur og austurrísku félagar hans. Mynd/www.oehb.at
Ráðning Patreks Jóhannessonar sem landsliðsþjálfara Austurríkis í handbolta er frágengin. Þetta kemur fram á heimasíðu handknattleikssambands Austurríkis. Patrekur fær það hlutverk að koma Austurríki á HM 2013 og EM 2014. Austurríkismenn hafa góða reynslu af Íslendingum enda má segja að Austurríki hafi komist á kortið í handbolta undir stjórn Dags Sigurðssonar. „Við Dagur erum góðir vinir til margra ára. Ég hef margsinnis rætt við hann um handboltann í Austurríki og mun gera enn meira af því í framtíðinni. Það geta allir lært af Degi en ég hef minn eigin stíl og fer mínar eigin leiðir," segir Patrekur á heimasíðu austurríska handknattleikssambandsins. Þar kemur einnig fram að Patrekur ætli að einbeita sér að starfi sínu sem landsliðsþjálfara Austurríkis. Patrekur lætur því af störfum sem íþróttafulltrúi Garðabæjar. Hann mun þó áfram verða með annan fótinn á Íslandi þar sem hann er í námi. Gerhard Hofbauer, forseti austurríska handknattleikssambandsins, er ánægður með ráðninguna. „Við höfum góða reynslu af Íslendingum enda var Dagur Sigurðsson hér. Við vonum að velgengnin haldi áfram undir stjórn Patreks." Patrekur segir fyrsta markmiðið að vinna leikina í undankeppni HM 2013 í janúar næstkomandi. Hans draumur sé þó að vinna til verðlauna með austurríska landsliðinu á HM eða EM.
Handbolti Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira