Snorri: Ég bað Jesper um að leigja Anfield næst Henry Birgir Gunnarsson skrifar 21. maí 2011 18:20 Snorri og Arnór eru hér kátir með sigurlaunin eftir leik. "
Þetta var meiriháttar gaman. Magnaður dagur. Frábært að verða meistari og ekki verra að setja heimsmet í leiðinni. Það er töff," sagði nýbakaður danskur meistari í handknattleik, Snorri Steinn Guðjónsson, við Vísi. "Að spila handbolta á fullum fótboltavelli er mjög sérstakt svo ég segi ekki meira. Þetta er búið að vera óraunverulegt í dag og reyndar öll vikan. Það vissi enginn hvað hann var að fara út í. Það er ekki hægt að útskýra hvernig upplifun þetta var. Fólk hefði þurft að vera á staðnum til að skilja það," sagði Snorri í geðshræringu og rifjaði upp þegar hinn skrautlegi eigandi félagsins, milljónamæringurinn Jesper Nielsen, stakk fyrst upp á því að spila á Parken. "Það var liðspartý og þá lét hann þetta út úr sér. Þá tók hann enginn alvarlega en honum er greinilega alvara með allt og aldrei að vita hvað hann gerir næst," sagði Snorri en verður þetta toppað? "Ég myndi segja nei ef ég þekkti ekki eigandann. Hann er til alls líklegur. Ég spurði hann að því áðan hvort hann væri ekki til í að leigja Anfield næst. Ég náði aldrei að spila fótbolta þar og þá er eini möguleikinn að spila handbolta á Anfield. Hann tók vel í það þannig að það er aldrei að vita hvað gerist," sagði Snorri og hló dátt. "Það verður síðan mikil gleði í kvöld og spennandi að sjá hvað kallinn gerir fyrir okkur. Við erum búnir að standa okkur vel og eigum skilið að brosa í kvöld og það munum við svo sannarlega gera."
Handbolti Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Fótbolti Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Fleiri fréttir Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Sjá meira