Derrick Rose kominn í hóp með Jordan - valinn bestur í NBA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. maí 2011 09:15 Derrick Rose. Mynd/AP
Bandarískir fjölmiðlar hafa heimildir fyrir því að Derrick Rose hjá Chicago Bulls hafi verið kosinn besti leikmaður NBA-deildarinnar á þessu tímabili en það kemur reyndar ekki mörgum á óvart. LeBron James hefur verið besti leikmaður deildarinnar undanfarin tvö ár. Derrick Rose setur með þessu nýtt NBA-met en hann verður yngsti leikmaður sögunnar til að vera kosinn mikilvægasti leikmaður deildarinnar. Rose var með 25 stig og 7.7 stoðsendingar að meðaltali á tímabilinu og hjálpaði Chicago Bulls að ná besta árangri allra liða í deildarkeppninni. Rose er aðeins 22 ára gamall og bætir met Wes Unseld sem var 23 ára þegar hann sem leikmaður Baltimore Bullets var kosinn mikilvægasti leikmaðurinn tímabilið 1968-69. Derrick Rose kemst líka í hóp með Michael Jordan en þeir eru einu leikmennirnir í sögu Chicago Bulls sem hafa fengið þessi virtu verðlaun.Derrick RoseMynd/APRose varð sjöundi stigahæsti leikmaður deildarinnar og endaði í 10. sæti yfir flestar stoðsendingar. Hann var eini leikmaður deildarinnar sem komst inn á topp tíu á báðum þessum listum. Michael Jordan var eini leikmaður Bulls sem hafði náð slíku á einu tímabili en þegar Jordan var stigahæstur tímabilið 1988-89 (32,5 í leik) þá varð hann einnig í 10. sæti í stoðsendingum. Rose var einnig með 4,1 frákast að meðaltali í leik en það eru aðeins sex aðrir leikmenn í sögu NBA sem hafa náð því að vera með að minnsta kosti 25 stig, 7,7 stoðsendingar og 4 fráköst að meðaltali í leik á heilu tímabili. Hinir eru Michael Jordan, Oscar Robertson, Jerry West, Larry Bird, Dwyane Wade og LeBron James.
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira