NBA í nótt: Enn einn sigurinn hjá Chicago Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. apríl 2011 11:00 Derrick Rose berst um boltann við Jerryd Bayless í leiknum í nótt. Mynd/AP
Chicago Bulls vann í nótt sinn fimmtánda sigur í síðustu sautján leikjum sínum í NBA-deildinni í körfubolta. Chicago vann Toronto, 113-106, og er nú aðeins einum sigri á eftir San Antonio Spurs sem er með besta árangur allra liða í deildinni. Derrick Rose var með 36 stig og tíu stoðsendingar í leiknum og er þetta í þriðja sinn í síðustu fimm leikjum Chicaco sem hann skorar minnst 30 stig í leik. Þjálfari liðsins, Tom Thibodeau, stýrði Chicago til 56. sigur liðsins á tímabilinu sem er met hjá þjálfara sem er á sínu fyrsta ári með félagið. Gamla metið átti Phil Jackson, núverandi þjálfari Lakers. Carlos Boozer var með átján stig og tíu fráköst, Luol Deng sautján stig og Taj Gibson fimmtán stig og níu fráköst. Joakim Noah er þó enn frá vegna ökklameiðsla en þetta var þriðji leikurinn í röð sem hann missir af vegna meiðslanna. Golden State vann Dallas, 99-92. Monta Ellis var með 32 stig og David Lee sextán fyrir Golden State. Memphis vann Minnesota, 106-89. Zach Randolph skoraði 22 stig fyrir Memphis sem vann sinn fjórða leik í röð en liðið er í sjöunda sæti Austurdeildarinnar. LA Clippers vann Oklahoma City, 98-92. Blake Griffin var með 26 stig og sextán fráköst fyrir Clippers. Milwaukee vann Philadelphia, 93-87, í framlengdum leik. Brandon Jennings skoraði þrettán stig, þar af níu í framlengingunni.
NBA Mest lesið Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Körfubolti KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Íslenski boltinn „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Körfubolti Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Körfubolti Martröð Chelsea en Brighton gæti endað í Meistaradeild Evrópu Sport Dómaraskandall og augnpot: Hrafn getur bundið enda á áralanga baráttu sína gegn Bean Sport Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Fótbolti Neymar æfur: „Enginn maður þolir þetta“ Fótbolti Ungur samherji Elíasar særðist alvarlega í hnífsstungurárás Fótbolti Eðlileg skýring á tættum Laugardalsvelli Fótbolti Fleiri fréttir „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Fyrstur til að vera kosinn varnarmaður ársins með fullu húsi Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Úlfarnir og Haukarnir með endurkomur Selfyssingar svöruðu fyrir sig Uppgjörið: Haukar - Keflavík 85-71 | Öruggt hjá Hafnfirðingum í fyrsta leik Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Of mikil pása gæti verið slæm „Vildi að pabbi væri hérna“ Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Hamar/Þór áfram í Bónusdeildinni eftir endurkomusigur Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Olnbogi Ægis brotnaði Sjá meira