Noregur, Danmörk og Svíþjóð töpuðu öll í gær Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. mars 2011 10:15 Svíar töpuðu óvænt fyrir Slóvökum í gær. Nordic Photos / AFP
Keppni í alþjóðlegum handbolta fór aftur á fullt skrið í gær rétt rúmum mánuði eftir að HM í Svíþjóð lauk. Greinilegt er að nokkur af þeim liðum sem náðu hvað lengst þar áttu erfitt uppdráttar í gær. Skemmst er frá því að segja að Noregur, Danmörk, Svíþjóð og Pólland töpuðu öll sínum leikjum í gær en leikið var í undankeppni EM 2012 sem fer fram í Serbíu á næsta ári. Ísland stóð þó fyrir sínu og vann sannfærandi fimm marka sigur á Þýskalandi í gær, 36-31. Slóvakía átti slæmu gengi að fagna á HM í Svíþjóð en gerði sér þó lítið fyrir í gær og unnu tveggja marka sigur á Svíum, 23-21. Svíar komust í undanúrslit á mótinu á meðan að Slóvakar áttu skelfilegt mót og urðu á endanum að sætta sig við sautjánda sætið. Norðmenn töpuðu fyrir Tékkum sem komust ekki einu sinni á HM í Svíþjóð, 29-26. Þá máttu Danir, sem voru frábærir á HM og töpuðu naumlega fyrir Frökkum í úrslitaleik mótsins, sætta sig við tap fyrir Rússum á útivelli í gær, 31-27. Öll þessi lið eiga þó enn góðan möguleika á því að komast á EM í Serbíu enda öll í talsvert auðveldari riðlum en þeim íslenska þar sem samkeppnin um tvö efstu sætin er afar hörð. Austurríki er á toppnum í þeim riðli með fimm stig eftir sigur á Lettlandi á útivelli í gær, 28-25. Ísland kemur svo næst með fjögur stig og Þýskaland er með þrjú. Áfram er spilað í undankeppni EM 2012 í kvöld.Úrslit gærkvöldsins og leikir dagsins:1. riðill: Makedónía - Ungverjalnd 22-29 Eistland - Bosnía 35-302. riðill (leikir í dag): Litháen - Rúmenía Spánn - Króatía3. riðill: Slóvenía - Pólland 30-28 Úkraína - Portúgal (í dag)4. riðill: Slóvakía - Svíþjóð 23-21 Ísrael - Svartfjallaland 29-245. riðill: Lettland - Austurríki 25-28 Ísland - Þýskaland 36-316. riðill: Tékkland - Noregur 29-26 Grikkland - Holland 30-237. riðill: Rússland - Danmörk 31-27 Sviss - Hvíta-Rússland 31-34
Handbolti Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Fleiri fréttir Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Sjá meira