Patrekur: Kem heim af fjölskylduástæðum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 18. mars 2011 14:00 Patrekur Jóhannesson.
Patrekur Jóhannesson sagði í morgun starfi sínu lausu sem þjálfari þýska B-deildarliðsins Emsdetten. Hann mun koma heim til Íslands í sumar. "Það er kannski sniðugt að segja upp áður en maður verður rekinn," sagði Patrekur léttur við Vísi í dag en starf hans var nú ekki í mikilli hættu og hann tekur þessa ákvörðun á eigin forsendum. "Þetta hefur legið lengi í loftinu og ákvörðunin er tekin af fjölskylduástæðum. Eldri strákurinn minn fór heim um áramótin og svo bíður mín góð vinna á Íslandi sem ég vil ekki fórna fyrir 2. deildarlið í Þýskalandi. Þetta er þess utan ekki öruggasta starf í heimi og hlutirnir fljótir að breytast." Patrekur segir að sér hafi staðið til boða að vera áfram hjá félaginu en hann sá ekki framtíð þar. "Þá hefði maður þurft að færa sig aftur um set og ég var ekki tilbúinn til þess að vera á sífelldum þeytingi með fjölskylduna," sagði Patrekur. Hann þjálfaði síðast Stjörnuna hér heima og er opinn fyrir því að þjálfa aftur hér heima. "Ég er með handboltann í blóðinu og verð örugglega viðloðinn handboltann heima. Ég er ekkert farinn að spá í næstu skrefum því tengdu og við sjáum bara hvað gerist," sagði Patrekur sem sér þó ekki eftir því að hafa farið út. "Ég hefði alls ekki viljað missa af þessu og hefði eflaust pirrað mig á því ef ég hefði ekki stokkið í slaginn. Þetta var mikill skóli og ég kem reynslunni ríkari heim."
Handbolti Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Fótbolti Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn Sjokk fyrir Róbert: „Heyrist hátt brak og maður varð hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira