Menningarlegt skemmdarverk 26. janúar 2010 06:00 Björn Brynjólfur Björnsson skrifar um kvikmyndagerð 35% niðurskurður á því fé sem mennta- og menningarmálaráðuneytið og fjármálaráðuneytið hafa skuldbundið sig með samningum til að setja í kvikmyndasjóði er lang mesti niðurskurður sambærilegra samninga í mennta- og menningarmálaráðuneytinu, þar sem niðurskurðurinn er 0% til 10%. Stefna yfirvalda er að skera mun meira niður í kvikmyndagerð en á nokkru sambærilegu sviði. Því var líst yfir þegar gengið var til niðurskurðar að ætlunin væri að dreifa byrðunum á sanngjarnan hátt. Hér er ekki verið að því. Hér er verið að vinna óbætanlegan skaða á atvinnugrein sem miklu meira vit væri í að efla. Nú hefur það bæst við að stjórnendur Ríkisútvarpsins segjast munu draga verulega úr kaupum á kvikmyndaefni sem framleitt er á Íslandi. Afleðingarnar verða þær að framleiðsla á leiknu sjónvarpsefni, sem nýlega er hafin hérlendismun enn dragast verulega saman og svo til útilokað verður að framleiða heimildarmyndir á Íslandi. Núverandi stjórnendur Rúv hafa með þessu útspili ítrekað þá stefnu að fyrirtækið eigi ekki samleið með íslenskri kvikmyndagerð og vöxtur hennar og viðgangur sé Rúv óviðkomandi. Útvarpsstjóri hefur lýst þessari skoðun með þeim orðum að Rúv hafi aðeins skyldum að gegna gagnvart áhorfendum sínum og engum öðrum. Brot á þjónustusamningiÍ hverri viku benda áhorfendur (með fjarstýringunni) stjórnendum Rúv á það efni sem þeir helst vilja fá: Vandað íslenskt efni. Þessir sömu áhorfendur eru óvart líka eigendur fyrirtækisins, en engu að síður ætla núverandi stjórnendur að fara þveröfuga leið og draga sem mest úr þessu efni.Sú skoðun að Rúv hafi engum samfélagslegum skyldum að gegna sem risafyrirtæki í almannaeigu á þessu sviði mun vera óþekkt í Evrópu þar sem fjöldi sambærilegra ríkisrekinna sjónvarpsstöðva líta ekki bara á það sem skyldu sína að starfa með kvikmyndaiðnaði síns lands að því að þróa og framleiða kvikmyndaefni sem á rætur í tungumáli og menningu þjóðarinnar - heldur gera það með mikilli ánægju.Slíkt samstarf hefur undantekningalaust getið af sér afurðir sem seljast víða um heim - og skila verðmætum gjaldeyri.Ákvörðun stjórnenda Rúv er líka brot á þjónustusamningi fyrirtækisins við mennta- og menningarmálaráðuneytið, en því svara stjórnendur Rúv á þann veg að þar sem framlög til stofnunarinnar hafa nú verið skert frá því sem segi í samningnum þurfi þeir hvorki, né geti, uppfyllt samninginn. Það munu margir forstöðumenn ríkisstofnana vera spenntir að sjá hvort ráðuneytið tekur þessa röksemdafærslu gilda. Ekki bara spurning um peningaRíkisútvarpið er að skera niður um 270 milljónir en tekjur þess á síðasta ári voru 4,4 milljarðar. Nú sjá stjórnendur þess enga aðra leið en að skera verulega niður þær 100 milljónir sem þeir kaupa fyrir íslenskt kvikmyndaefni. Fyrir þessa peninga fást kvikmyndir, heimildamyndir og leikið sjónvarpsefni sem kostar milljarða að framleiða því aðeins lítill hluti kostnaðar við framleiðslu þessa efnis er greiddur af Rúv. Framleiðslukostnað þess efnis sem Rúv framleiðir sjálft þarf fyrirtækið hinsvegar að greiða að fullu.En peningar eru ekki allt. Ef við þurfum á einhverju að halda á þessum dögum þá eru það kvikmyndir, heimildarmyndir og sjónvarpssþáttaraðir um lífið í þessu landi. Börnin okkar þurfa á því að halda. Kvikmyndir eru stór hluti af menningu okkar og tilveru og sá hlutur mun stækka.Framsýnir leiðtogar myndu efla þennan iðnað sem skapar spennandi störf sem ungt fólk hefur áhuga á og vinnur með tungumál okkar og menningu.Hér eru miklir möguleikar. Við eigum vel menntað fagfólki í öllum deildum. Eftirspurn eftir vönduðu kvikmyndaefni í veröldinni er óseðjandi og fátt er betur til þess fallið en kvikmyndir að flytja heiminum mynd af þessu landi, fólkinu sem hér býr - og lífinu sem það lifir. Það er mynd sem við þurfum ekki að skammast okkar fyrir.En við þurfum að skammast okkar fyrir þau skemmdarverk sem nú eru unnin á íslenskri menningu.Höfundur er formaður Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnarNúverandi stjórnendur Rúv hafa með þessu útspili ítrekað þá stefnu að fyrirtækið eigi ekki samleið með íslenskri kvikmyndagerð og vöxtur hennar og viðgangur sé Rúv óviðkomandi. . Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar