Óskýrar leikreglur Bjarni Gunnarsson skrifar 21. júlí 2010 06:00 Óskýrar leikreglur eru að hrjá íslensku þjóðina á öllum vígstöðvum þessar stundirnar. Ber þar fyrst að nefna að allt fjármálakerfið er í uppnámi vegna þess að gengistryggð lán voru talin lögleg og dæmd lögleg í héraðsdómi og svo dæmd ólögleg í Hæstarétti. Þarna tel ég að lög nr. 38 frá 2001, „Lög um vexti og verðtryggingu", séu óskýr þar sem stendur að „heimilt er að verðtryggja sparifé og lánsfé sé grundvöllur veðtryggingar vísitala neysluverðs". Þarna þurfti að grafa upp „anda laganna" til að skilja að öll önnur trygging sé óheimil samkvæmt lögunum. Af hverju stóð þá ekki í lögunum að EINUNGIS væri heimilt að verðtryggja með neysluvísitölunni? Önnur nærtæk dæmi um óskýrar leikreglur er greiðsluþátttaka Landsvirkjunar í skipulagsmálum svæða við mögulega virkjunarstaði í Neðri-Þjórsá, kæra á útboði Landsvirkjunar á virkjunarframkvæmdum við Búðarháls, kæra á útboði Vegagerðarinnar á vegaframkvæmdum á Suðurlandsvegi og síðast en ekki síst Magma-málið. Klúðrið með gengistryggðu lánin er rétt að byrja burtséð frá því hvernig þau verða reiknuð í uppgjöri aðila, því allir þeir sem hafa misst fyrirtæki sín, bíla eða aðrar eignir íhuga nú stöðu sína og munu leita leiða til að fá leiðréttingu mála sinna. Varðandi óskýra dóma, þá vil ég nefna títtnefndan Hæstaréttardóm nr. 153/2010, Lýsing gegn Jóhanni og Trausta þar sem stefndu, Jóhann og Trausti, voru sýknaðir af kröfum stefnanda, Lýsingar. Þar stendur í kafla III í dómi héraðsdóms (sem var staðfestur af Hæstarétti) að „tenging skuldbindinga við gengi erlendra gjaldmiðla telst því til verðtryggingar í skilningi VI. kafla laga nr. 38/2001". Síðar segir í kafla III: „Grundvöllur verðtyggingar samkvæmt samningi aðila, þ.e. ákvæði 4. og 7. gr. samningsins um gengistryggingu, er því í andstöðu við VI. kafla laga 38/2001 og því ógild." Síðasta afgerandi setningin í dómnum hljóðar svo: „Samningurinn er á hinn bóginn ekki ógildur í heild sinni." Þarna finnst mér, ólögfróðum manninum, augljóst hvað þessi dómur segir, nefnilega að ólögleg gengistrygging telst til verðtryggingar í skilningi VI. laga nr. 38/2001 og því hlóta þessi gengistryggðu lán sem flokkast með lánum þeim sem Hæstiréttur fjallaði um í dómi nr. 153/2010 að vera verðtryggð og að á þau falli samningsvextir lánanna. Þessa niðurstöðu tel ég enda vera eðlilega og sanngjarna í stöðunni og ekki er hægt að segja að hún sé viðkomandi neytendum í óhag þar sem þeir eru að borga u.þ.b. helmingi lægri vexti af þessum lánum miðað við meiri hluta landsmanna sem tóku „lögleg" verðtryggð lán á sínum tíma. Þar sem útreikningar þeir sem sýndir hafa verið varðandi gengistryggðu lánin og mismunandi uppgjör þeirra eru óljósir, vil ég hér sýna hvernig 10 m.kr. kúlulán tekið í júní 2007 lítur út í júní 2010: Gengistryggt lán (50% svissneskir frankar og 50% jen) með 3,5% vöxtum stæði í 27,5 m.kr. Samkvæmt túlkun flestra sem tóku þessi gengistryggðu lán stæði lánið í 11,1 m.kr., þ.e. það væri ótryggt með 3,5% vöxtum. Samkvæmt því sem ég tel að dómur nr. 153/2010 segi, þá stæði lánið í 14,9 m.kr, þ.e. verðtryggt með 3,5% vöxtum. Lánakjör sem meirihluti landsmanna býr við, þ.e. verðtryggingu og áætlaða 7% meðalvexti reiknast til að standa í 16,4 m.kr. Á þessum samanburði sést hversu háar upphæðir liggja hér undir og finnst mér persónulega jafn óréttlátt að svona kúlulán standi annars vegar í 27,5 m.kr og hins vegar í 11,1 m.kr. En þetta mál verður óleyst fram á haust, og þá er að vona að dómur komi fram sem verður ekki óskýr. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Guðbjörg verður áfram gul Reynir Traustason Skoðun Hinir „hræðilegu“ popúlistaflokkar Einar G. Harðarson Skoðun Umbúðir, innihald og hægfara tilfærsla kirkjunnar Hilmar Kristinsson Skoðun Stingum af Einar Guðnason Skoðun Netverslun með áfengi og velferð barna okkar Ingibjörg Isaksen Skoðun Jólapartýi aflýst Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Við gerum það sem við sögðumst ætla að gera Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Kvennaár og hvað svo? Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Hafnarfjörður í mikilli sókn Orri Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Netverslun með áfengi og velferð barna okkar Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Við gerum það sem við sögðumst ætla að gera Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Stingum af Einar Guðnason skrifar Skoðun Guðbjörg verður áfram gul Reynir Traustason skrifar Skoðun Kvennaár og hvað svo? Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Hinir „hræðilegu“ popúlistaflokkar Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í mikilli sókn Orri Björnsson skrifar Skoðun Jólapartýi aflýst Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Umbúðir, innihald og hægfara tilfærsla kirkjunnar Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Verðmæti dýra fyrir jörðina er ekki mælanlegt í krónum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Staða eldri borgara á Íslandi í árslok 2025 Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Landhelgisgæslan er óábyrg Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Nýtt ár, nýr veruleiki, nýtt samtal Kristinn Árni Hróbjartsson skrifar Skoðun Kolefnissporið mitt Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Fullkomlega afgreitt þjóðaratkvæði Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á atvinnuvegaráðherra von á kraftaverki? Björn Ólafsson skrifar Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson skrifar Skoðun Von, hugrekki og virðing við lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Áramótaannáll 2025 Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar