Guðberg Guðmundsson: Landráð Guðberg Guðmundsson skrifar 14. maí 2010 10:04 Það er með ólíkindum hvað þjóðin er gleymin. Hræsnin í hverju horni og hvert sem litið er virðist sem svo að engin vilji muna. En helst vilja margir gleyma öllu sem allra allra fyrst, það var ekki ég það var hinn og svo framvegis kemur fram í skýrslum sem maður les og heyrir í fjölmiðlum um þessar mundir. Ég man þá daga þegar ég stundaði mín afbrot þá tókum við félagarnir okkur saman að annar tæki á sig þetta og hinn eða hinir hitt ef illa færi og komumst við í flestum tilfellum upp með það, við sátum líka í gæsluvarðhaldi allt upp í heila 3 mánuði en vinsælastir voru 30 og svo 45 dagarnir og framlengt eftir þörfum eftir því hvað menn voru óþægir við að gangast við allri vitleysunni og mannréttindabrotin fóru á kostum í sakadómi Reykjavíkur og örugglega annarstaðar ef vel er að gáð. En víkjum svo að því að engin tók upp hanskann fyrir okkur og vældi yfir því að við ættum börn og fjölskyldu og fleira okkur til framdráttar. Siðleysið var þá í algleymingi í þá daga, eða voru menn bara svona langt á eftir vegna þess að okkur var kastað of snemma inn í þá framtíð sem við lifum í nú? Víkjum svo að þeim sem ég kalla landráðamenn,og er ég ekki einn þar í hópi,ég fjallaði lítillega um landráð í grein minni sem ég nefndi „Lesendur góðir" þann 10. febrúar síðastliðinn að mig minnir. Um þessa menn er mikið spjallað í dag og eru þeir margir hornapúkarnir sem segja að það ætti að skjóta þá. Sumir eru ekki alvondir og vilja að þeir sitji að minnsta kosti þann tíma sem kveðinn er upp yfir þeim fyrir landráð, síðan að henda þeim úr landi og öllum þeim sem taka upp hanskann fyrir þá. Til dæmis aumingja mennirnir eiga börn og ýmislegt annað þeim til ágætis maður fer að hugsa ljótt skyldi einhverjum hafa verið borgað fyrir að taka upp þeirra málstað eða hafa sumir hverjir þroskast eilítið? Vissu þessir menn ekki að það er bannað að ganga svo hart nærri landi sínu og þjóð að hún bæri þess aldrei bætur? Ég efast um að svona fólk sé með fullu viti og krefst þess hreinlega að eftir yfirheyrslur og rannsókn þessara mála verði þeir látnir gangast undir svokallað siðferðisblindupróf eða eitthvað í þá áttina. Hér fyrr á árum lét rannsóknarlögregla eftirlýsa menn fyrir ávísanafals og fl. Það kom jú fyrir að Interpol hló að þessu og hélt að verið væri að eftirlýsa einhverja stórfellda glæpamenn en ekki einhverja smá falsara frá landinu góða. En hvað við höfum kannski engan rétt? Til að fá menn framselda grunaða um landráð, mér er spurn, er flugvél að lenda á höfðinu á mér hvað er í gangi? Mamma mamma láttu vondu menninna ekki loka mig inni væl hefur lengi fylgt í kjölfar meiri háttar glæpa og mönnum bara sagt að vera bjartsýnir og horfa fram á veginn. Það er ekki nema von að horfurnar í þjóðfélaginu séu svona. Öll lög og regla er farin úr böndunum fyrir löngu síðan. Það eru engin fangelsi til á þessu landi og á meðan að það eru ekki til alvöru fangelsi fá menn að ganga frjálsir og halda áfram að safna á sig. Það er háðung fyrir þjóðfélag eins og okkar land að menn geti haft dómsvaldið í vasa sínum eins og eitthvað viðhald. Þannig hefur það verið síðan ég fæddist óvelkominn í þennann heim 1943 og heldur áfram þangað til að einhver eða einhverjir stoppa þessa vitleysinga af. Gleðilegt sumar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir Skoðun Kristrún og Kópavogsskatturinn – opið bréf frá leikskólastjóra í Kópavogi Egill Óskarsson Skoðun Góð, betri, best Heiðrún Kristmundsdóttir Skoðun Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson Skoðun Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir Skoðun Byrgjum brunninn í stað þess að byggja brunna Bryndís Rut Logadóttir Skoðun Er byggðastefna á Íslandi? Eyþór Stefánsson Skoðun Hugsum lengra en næstu kosningar Halldór Jörgen Olesen Skoðun Tímaskekkjan er ekki verkalýðshreyfingin Unnar Geir Unnarsson Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald Skoðun Skoðun Skoðun Hraðar heim Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Kristrún og Kópavogsskatturinn – opið bréf frá leikskólastjóra í Kópavogi Egill Óskarsson skrifar Skoðun Hugsum lengra en næstu kosningar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir skrifar Skoðun Er byggðastefna á Íslandi? Eyþór Stefánsson skrifar Skoðun Góð, betri, best Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn í stað þess að byggja brunna Bryndís Rut Logadóttir skrifar Skoðun Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Tímaskekkjan er ekki verkalýðshreyfingin Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun Eigum við að forgangsraða börnunum okkar? Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ætti Ísland að taka þátt í PISA? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Betri heilsa – betri Kópavogur Arnar Grétarsson skrifar Skoðun Vélarnar ræstar út í skurð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Að lifa, þrátt fyrir brotna odda Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald skrifar Skoðun Við klippum ekki borða! Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson skrifar Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason skrifar Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Sjá meira
Skoðun Kristrún og Kópavogsskatturinn – opið bréf frá leikskólastjóra í Kópavogi Egill Óskarsson skrifar
Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar