Uppnám hjá lánveitendum 18. júní 2010 06:00
Uppnám er innan eignaleigufyrirtækja eftir dóm Hæstaréttar um gengistryggingu og bíða menn þar á bæjum þess nú að stjórnvöld taki ákvörðun um framhaldið. Algjör óvissa ríkir um það í hverju aðgerðir stjórnvalda munu felast, ef yfirleitt verður gripið til nokkurra slíkra. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur fyrirspurnum rignt yfir eignaleigufyrirtækin frá því að dómurinn féll á miðvikudag og hefur starfsfólk ekki haft undan við að svara þeim. Í flestum tilfellum er fólk að forvitnast um stöðu lána sinna. Þess eru þó dæmi að fólk krefjist þess að eignaleigufyrirtækin greiði til baka þá peninga sem það telur sig eiga inni hjá fyrirtækjunum. Sumir hafa jafnvel gengið enn harðar fram og sagst ætla að sækja peningana í dag og vilji fá þá greidda út í hönd. Unnið hefur verið myrkranna á milli við að teikna upp viðbrögð við hugsanlegum niðurstöðum stjórnvalda og láta stöðva innheimtuaðgerðir, að minnsta kosti tímabundið. Óvissan er gríðarleg, enda hefur Hæstiréttur einungis kveðið upp úr með það að gengistrygging sé ólögleg, en ekki fellt dóm um það hvernig skuli leysa úr þeim vanda. Enn er meðal annars eftir að svara því hvernig skuli gera lánin upp og á hvaða vöxtum, hvað verði látið gilda um þá sem þegar hafa greitt sín lán að fullu, og hvort slík mál geti í einhverjum tilfellum verið fyrnd. Tveir möguleikar eru helst nefndir til sögunnar fyrir stjórnvöld: Annars vegar að lýsa því yfir að ekki verði sérstaklega gripið inn í og hin íslensku vaxtalög verði látin gilda. Af því myndu líklega rísa dómsmál í kjölfarið vegna ýmiss konar ágreinings. Hins vegar gætu stjórnvöld ákveðið að setja sérstök lög til að reyna að leiða málið til lykta, en áhöld eru um hvort hægt sé að gera það afturvirkt. Steingrímur J. Sigfússon sagði í Fréttablaðinu í gær að það væri alls ekki sjálfgefið að niðurstaðan kallaði á sérstök viðbrögð stjórnvalda. Í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi sagði hann þó að unnið væri í málinu. „Við ræðum það í ríkisstjórn í fyrramálið. Menn þurfa sinn tíma til að átta sig nákvæmlega á því hvað dómurinn þýðir og hvernig unnið verði úr honum. En það er mikilvægt að tryggja að farið verði eftir þeirri leiðsögn sem dómur Hæstaréttar veitir," segir Steingrímur. Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, segir boltann nú hjá stjórnvöldum sem þurfi að hraða skoðun málsins. „Það er mjög mikilvægt að línur skýrist innan fárra daga svo þessari almennu óvissu verði eytt," segir hann. stigur@frettabladid.is
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira