Örlítil athugasemd 17. febrúar 2010 06:00 Sverrir Hermannsson skrifar um bókina Umsátrið. í „Umsátri" Styrmis Gunnarssonar, fyrrv. ritstjóra Morgunblaðsins, segir svo á bls. 208: „Síðla vetrar 1998 urðu miklar sviptingar í Landsbanka Íslands. Bankastjórarnir voru reknir." Að vísu sögðu þeir upp störfum sínum. Sá sem hér heldur á penna var „rekinn" aðallega vegna þess, að hann hafði neitað Davíð Oddssyni um þann greiða að hafa æru og atvinnu af Styrmi Gunnarssyni. Þá ósk Davíðs flutti Kjartan Gunnarsson, varaformaður bankaráðs Landsbankans, Sverri bankastjóra að morgni dags, bláþústaður mjög. Kvaðst Kjartan ekki fram bera þá ósk við bankastjórann heldur fyrrverandi framámann og trúnaðarmann Sjálfstæðisflokksins. Foringi sinn, Davíð, væri búinn að fá sig fullsaddan af þjónustu Styrmis við Jón Baldvin Hannibalsson og hefði komizt á snoðir um að skuldastaða Styrmis við Landsbankann væri slík, að hægur vandi væri að segja skuldunum upp og ganga að Styrmi og gera hann gjaldþrota. Hvar Davíð hefir komizt að því trúnaðarmáli er hægur vandi að geta sér til um. Hvaðan brottrekstrareinkunnin er fengin er einnig auðvelt að sjá enda sat Styrmir ritstjóri vikulega slímusetu á fundum árum saman með Finni útherja og Helga horska. Það hefði verið fróðlegt að vera þar fluga á vegg og heyra lýsingar framsóknarmannanna á viðskiptum sínum við bankamálaráðherrann Valgerði frá Lómatjörn. T.d. kaup þeirra á helmings hlut Landsbankans í Vátryggingarfélagi Íslands fyrir kr. 6,8 milljarða, sem þeir síðan seldu tæpum þrem árum síðar fyrir kr. 31,5 milljarða. Þá hefir það verið einkar upplýsandi fyrir hinn fréttaþyrsta ritstjóra að hlusta á frásögn fjáraflamannanna af því þegar þeir tóku að sér, óbeðið og umboðslaust, ásamt Þórólfi Sauðkrækingi, að annast fjárreiður Samvinnutrygginga að upphæð kr. 30 milljarðar. Þá hefir Helgi horski vafalaust verið til frásagnar um sölu Halldórs Ásgrímssonar á Ísl. aðalverktökum til formanns einkavæðingarnefndar, Jóns Sveinssonar, fyrir 3,6 milljarða. Helgi sat fund tilbjóðenda og átti Jón Sveinsson og co. ekki hæsta tilboðið, en Helgi tilkynnti þá skyndilega, að málið þarfnaðist ekki umræðu, því „Halldór er búinn að ákveða að hvaða tilboði verður gengið". Með í þeim kaupum var m.a. fjöldi byggingalóða í Blikastaðalandi. Morgunblaðið greindi síðar frá sölu á hluta af þeim lóðum, en vissi ekki nákvæmlega um söluverð. Taldi verið hafa kr. 16-18 milljarðar. En hver skyldi hafa logið því upp, að Alfreð Þorsteinsson í Orkuveitu hafi selt Finni útherja alla hita- og rafmagnsmæla í Reykjavíkurborg fyrir kr. 600 milljónir, sem flugrekstrarfólinn leigir oss íbúum fyrir kr. 300 milljónir á ári? Annars hélt undirritaður að Styrmir Gunnarsson tryði betur Davíð Oddssyni en þeim horska og útherjanum. Eða hann er búinn að gleyma heimsókn Davíðs til þeirra ritstjóra Matthíasar og Styrmis, þegar Landsbankamálið var um götur gengið og Jón Steinar Gunnlaugsson gert rækilega úttekt á málinu m.a. Þá kom Davíð á fund ritstjóranna og tilkynnti: „Landsbankamálið var bara fum og fát. Sverrir hafði ekkert gert af sér." Höfundur er fyrrverandi bankastjóri Landsbanka Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar