Athugasemd við yfirklór Halldórs Halldórssonar Sigurður Magnússon skrifar 4. febrúar 2010 10:19 Í gær skrifaði ég pistil visi.is í tilefni af fréttaviðtali við Halldór Halldórsson, formann Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstjóra á Ísafirði. Í viðtalinu sem fjallaði um fjárhagsvanda Álftaness sagði hann að ríkið yrði að koma að málum, en ekki endilega með fjárstuðningi. Þetta sagði formaður Samtaka íslenskra sveitarfélaga þótt honum væri kunnugt um greinargerð Álftaness til Jöfnunarsjóðsins þar sem rökstudd er krafa um leiðréttingu á jöfnunargreiðslum. Í grein minni sýndi ég fram á að greiðslur til Ísafjarðar eru miklu hærri en til Álftaness og taldi það sanna að regluverk sjóðsins þyrfti endurskoðunar við. Til að sveitarfélögin væru jafnsett þyrftu árlegar greiðslur til Álftaness að hækka um 150 milljónir. Á fréttavef www.bb.is er haft eftir Halldóri að samanburður minn sé rangur af því að sveitarfélögin tvö séu ekki samanburðarhæf, m.a. vegna þess að aðstæður séu ólíkar t.d. séu fleiri skólar á Ísafirði . Þetta er yfirklór hjá formanninum. Að sjálfsögðu eru þessi tvö sveitarfélög ólík um margt t.d. eru 60% fleirri leikskólabörn á Álftanesi og 20% fleiri grunnskólabörn og margt annað mætti nefna, s.s. að nær ekkert atvinnulíf er á Álftanesi sem færir tekjur í bæjarsjóð. En þetta er ekki kjarni málsins heldur sú staðreynd sem ég nefni í grein minni að fjárhagsaðstæður,- áður en greitt er úr Jöfnunarsjóði eru sambærilegar í báðum sveitarfélögunum, þ.e.a.s., tekjur deilt á íbúa þær sömu og eins rekstrarkostnaður. Því þarf að spyrja af hverju fær annað sveitarfélagið þ.e.a.s Ísafjörður miklu hærri greiðslur frá Jöfnunarsjóði og styrkir þannig rekstur sinn umfram Álftanes? Af hverju mælir reiknivél sjóðsins aðstæður á Ísafirði umfram aðstæður á Álftanesi, Ísafirði til tekna, og vanmetur séraðstæður á Álftanesi s.s. hátt hlutfall barna og skort á tekjum frá atvinnulífi? Er ekki Halldór, formaður Sambandsins, sammála því að mikilvægt sé að styðja við barna- og æskulýðsstarf sveitarfélaganna og að hlúa beri sérstaklega vel að samfélagi með hátt hlutfall barna og unglinga? Hvers vegna þá að hafa Álftanes afskipt sem er með um 40% hærra hlutfall barna og unglinga en landsmeðaltal? Formaður Sambands íslensksra sveitarfélaga getur ekki, þótt hann sé bæjarstjóri á Ísafirði og vilji verja tekjur sinnar heimabyggðar, skautað yfir þessar staðreyndir og reynt að þagga umræðuna um þá mismunun sem Álftanes hefur verið beitt árum saman. Hann má ekki rugla saman hlutverki sínu sem bæjarstjóri og skyldum sínum sem formaður íslenskra sveitarfélaga. Sigurður Magnússon, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri á Álftanesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar