Opið bréf til heilbrigðisráðherra Gísli Vilhjálmsson skrifar 4. febrúar 2010 06:00 Um áramót, eða nánar tiltekið 21.12.2009, settir þú nýja reglugerð varðandi endurgreiðslu tannréttinga. Reglugerðin tók gildi 1.1.2010 og var sett án samráðs við tannréttingasérfræðinga sem eiga að sjá um skýrslugjöf til Sjúkratrygginga (SÍ). Tilgangur reglugerðarinnar er augljós: Að skerða þá litlu fjárhæð sem í málaflokkinn fer með því að takmarka endurgreiðslur enn frekar en nú er gert. Tryggingayfirtannlækni SÍ er gefið ótakmarkað vald til að dæma um hvort læknisfræðilega sé þörf á meðferðinni eður ei. Sjúklingi er ekki heimilt að leita þjónustu án undangenginnar samþykktar stofnunarinnar og missir hann réttindi sín ef hann dirfist að leita þjónustu án samþykkis tryggingayfirtannlæknis. Tryggingayfirtannlækni, sem er sérfræðingur í tannholdssjúkdómum en ekki tannréttingum, er gefið vald til að ákvarða réttindi sjúklinga. Aðrir tannlæknar vinna ekki við SÍ og miðað við reynslu síðustu ára af Úrskurðarnefnd almannatrygginga hefur sú nefnd sýnt með úrskurðum sínum að hún leitar sjaldan álits annarra tannlækna á kærumálum. Tryggingayfirtannlækni er þá í raun með setningu reglugerðarinnar afhent einræðisvald. Þessi málaskipan er mikil afturför frá fyrra kerfi sem notað hefur verið árum saman og einkennist af skýrum, einföldum reglum og jöfnum rétti þeirra sem fara í tannréttingu. Með nýju reglunum er líka verið að gefa áliti tannréttingasérfræðinga sem verkið vinna langt nef. Reglugerðinni er einnig ætlað að bæta hag barna með skarð í vör og góm. Tannréttingar þessara barna snúast ekki nema að litlu leyti um „tennur". Meðferðin snýst um að vinna með lýtalæknum og kjálkaskurðtannlæknum við að lagfæra góma og undirliggjandi andlitsbein þannig að hægt sé að lagfæra tennur og kjálka og koma þeim í eðlilegt horf. Meðferð þessara barna er flókið margslungið ferli sem erfitt er að lýsa stuttlega í blaðagrein. Í erfiðustu tilfellunum getur meðferðarferlið staðið frá 6-7 ára aldri og fram yfir tvítugt. Reglugerð þín er þó ekki að flækja málið: Læknisferlið er sett í tvo flokka: 1. Opna skarð fyrir beinflutning. Hámarksendurgreiðsla 200 einingar eða kr. 138.600 2. Tannréttingarmeðferð með föstum tækjum(teinameðferð) í 3 ár að hámarki 800 einingar eða kr. 554.400. Samtals gerir þetta 693 þúsund krónur alls. Þú fullyrtir í sjónvarpsviðtali að nú eigi að taka rösklega á þessu málefni og það eigi ekki að bitna á börnunum að fá þennan fæðingargalla í vöggugjöf. Þau eigi að fá aðgerðir að fullu greiddar. Ég sé það ekki á þessari endurgreiðsluskrá. Algengt verð á venjubundnum tannréttingum, þ.e. tannréttingum barna sem ekki eru með skarð í vör og góm, hjá tannréttingasérfræðingum um allt land er á bilinu 700-1100 þúsund krónur. Mig langar að vita hvar þú ætlar fyrir hönd þessara barna að kaupa 10-15 ára þjónustu fyrir tæpar 700 þúsund krónur. Ég get ekki séð annað en að enn og aftur eigi að slá ryki í augu forráðamanna þessara barna og þeir þurfi að greiða 60-70% af kostnaði við tannréttingar barna sinna. Reglugerð þín virðist ekki breyta neinu þar um, þú leiðréttir mig ef rangt er. Tannréttingasérfræðingar hafa með glöðu geði sinnt upplýsingagjöf til SÍ um meðferð sjúklinga sinna svo þeir geti leitað réttar síns varðandi endurgreiðslur. Hefur þetta verið í formi staðfestingarvottorðs. Nú bregður svo við að þú ætlast til meira en upplýsingar um sjúklinga í reglugerð þinni og í raun með því að undirskrifa umsóknina um endurgreiðslu fyrir skjólstæðinga okkar þá erum við að samningsbinda okkur SÍ og lagðar eru á okkur nýjar kvaðir eins og að gefa föst verð í flókin ófyrirséð verkefni og binda verðskrá tilkynningarskyldu til SÍ með 3ja mánaða fyrirvara. Tannréttingasérfræðingar óska eftir eðlilegum óþvinguðum samskiptum við SÍ og heilbrigðisyfirvöld. Tannlæknar hafa ekki sóst eftir samningi við heilbrigðisyfirvöld, einfaldlega vegna þess að þau treysta sér ekki til að greiða raunkostnað við tannlækningar og hafa ekki gert í fjölda ára. Að „setja" tannréttingasérfræðinga á samning með valdboði er nýlunda sem greinilega á að reyna með því að neita sjúklingum um endurgreiðslu nema tannlæknirinn beygi sig undir valdboð þitt. Ég get ekki skrifað undir umsóknir á meðan slík þvingunarráðstöfun er við lýði og ég á von á að fleiri starfsfélagar mínir líti einnig þannig á málið. Ég vil hvetja þig til að skoða og breyta umræddri reglugerð á ný með tilliti til þess að hægt verði að vinna eftir henni og hún nái þeim tilgangi að þjóna þeim sem mesta aðstoð þurfa. Hlustaðu á skjólstæðinga þína og þá sem vinna eiga verkin, en ekki falla ofan í embættismannagryfjuna sem forverar þínir komust aldrei upp úr. Höfundur er tannréttingasérfræðingur og er með fjölda barna með skarð í vör og góm í meðferð. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Sjá meira
Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun