Innlent

Skorað á WHO að leita að lækningu við mænuskaða

Zsuzsanna Jakab yfirmaður Evrópudeildarinnar (tv) og Auður Guðjónsdóttur stjórnarformaður Mænuskaðastofnunar Íslands.
Zsuzsanna Jakab yfirmaður Evrópudeildarinnar (tv) og Auður Guðjónsdóttur stjórnarformaður Mænuskaðastofnunar Íslands.

Auður Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur og stjórnarformaður Mænuskaðastofnunar Íslands hefur afhent Zsuzsönnu Jakab yfirmanni Evrópudeildar WHO, Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar, áskoranir frá um 5000 Norðurlandabúum um að WHO láti til sín í taka í leitinni að lækningu á mænuskaða.

Í tilkynningu frá Mænuskaðastofnun segir að samhliða þriggja vikna auglýsingaátaki Mænuskaðastofnunar á Norðurlöndum í desember síðastliðnum, þar sem auglýsingin Lamaða strengjabrúðan var sýnd á einni sjónvarpsstöð á hverju Norðurlandanna, tókst að safna um 5000 undirskriftum þar sem skorað er á að WHO láti til sín taka á þessum vettvangi.

„Frú Jakab lofaði frumkvæði Íslands og að málið yrði skoðað vandlega hjá WHO," segir ennfremur.

Mænuskaðastofnun Íslands, rekur alþjóðlegan gagnabanka, þar sem er stöðugt verið að byggja upp og endurnýja allar helstu upplýsingar um nýjungar í meðferð á mænuskaða á helstu tungumálum heims.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×