Hjálmar Hjálmarsson: Júróvisjón lýðræði Hjálmar Hjálmarsson skrifar 27. maí 2010 09:38 Nú er ljóst að þjóðin gengur til tvennra kosninga n.k. laugardag. Í öðrum þeirra og þeim mikilvægari sýnist mér, gefst okkur tækifæri til að velja besta sönglag Evrópu þetta árið í Evróvisíón og í hinum fáum við tækifæri til að velja okkur fulltrúa í stjórn bæjarins okkar. Það er gaman að bera saman umfjöllun RÚV um þessar tvennar kosningar. Hollenska lagið Shalala fær u.þ.b. 10 sinnum lengri tíma til að kynna framlag sitt, en X-listinn í Kópavogi. NæstBestiFlokkurinn, sem er nýtt framboð, fékk samtals 30 sekúndur í sjónvarpi allra landsmanna í stuttu Kastljós-innslagi 10 dögum fyrir kosningar. Þá er í fréttum RÚV í þessari viku vitnað í 6 vikna gamla skoðanakönnun um fylgi flokkanna í Kópavogi sem var gerð löngu áður en framboðsfrestur rann út og þrír af sjö framboðslistum voru þá ekki komnir fram. Hins vegar var fjallað um Evróvisíón sönglagakosningarnar í fimm 50 mín. sérlöguðum sjónvarpsþáttum með einum þekktasta og best klædda skemmtikrafti landsins sem leitaði álits annálaðra og prúðbúinna sérfræðinga á sviði Evró-sönglaga, sem fjölluðu á ítarlegan hátt um útlit, framkomu og flutning allra frambjóðenda til Evróvisíón-kosninganna, í skemmtilegu og litríku umhverfi í sjónvarpssal allra landsmanna. Auk þess bar fyrir augu samevrópskan þátt um þetta efni sem tók um klst. í flutningi. Þess utan fáum við í kosningavikunni 7 klst. útsendingu frá Júró-kosningunum sjálfum sem enda vonandi vel á laugardaginn þegar ritstjóri Kastljóssins kynnir kosningaúrslitin í beinni frá Osló. Auðvitað geta menn rifist fram og til baka um það hvort framlag X listans NæstBestaFlokksins, til kosninganna í Kópavogi sé eins skemmtilegt eða merkilegt eða hversu áhugavert sjónvarpsefni það er í samanburði við framlag Hollands, Shalala, til Evróvisíón kosninganna en maður veltir því óneitanlega fyrir sér hvernig stjórn RÚV skynjar hlutverk sitt þegar kemur að lýðræðisumræðu og upplýsingu til almennings um grundvallar réttindi fólks. Sannarlega erum við langflest búinn að fá hundleið á hinu flokkspólitíska argaþrasi en Íslendingar eru ekki leiðir á stjórnmálum. Þeir vilja einmitt hafa meira um hlutina að segja. Við erum hins vegar komin með upp í kok af gömlu, ónýtu og spilltu flokkunum og það lýsir sér vel í góðu gengi Bestaflokksins í Reykjavík. Því miður höfum við ekki tækifæri til að velja besta lagið í Evróvisíón kosningunum á laugardaginn. Við verðum því að treysta evrópskum kjósendum til þess að velja Heru og Örlyg Smára en neyðumst sjálf til að kjósa það næstbesta. Ég sting upp á að kjósendur í Kópavogi geri það einnig á laugardaginn, setji x við X og velji NæstBestaFlokkinn. P.S. Hefðu ekki sparast einhverjar krónur við það að láta Þóru Tómasdóttur fyrrverandi Kastljósdrottningu lýsa Evróvisíón kosningunum? Hún býr jú í Osló, talar þessa fínu norsku líka og hefði farið létt með þetta.Höfundur er oddviti NæstBestaflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar