Skoðun

Til hamingju, tónlist

Sigursveinn Magnússon skrifar
Rifjaði upp nýlega tónleika þar sem unglingar höfðu flutt 9. sinfóníu Beethovens í tvígang fyrir fullu húsi hér í Reykjavík. „Hvað er að gerast?" sagði hann.

„Fyrir aðeins fáeinum áratugum, þótti það stórvirki að Sinfóníuhljómsveit Íslands og Söngsveitin Fílharmónía skyldu ráða við að flytja þetta öndvegisverk og nú gera börnin okkar sér leik að því að flytja þessa stóru hljómkviðu. Eru þau svona miklu gáfaðri og tónvissari en við, foreldrarnir? Svo fór ég að hugsa málið," hélt hann áfram. „Hvaðan kemur allur sá skari æskufólks sem er skapandi í músík. Af hverju blómstra hátíðir á borð við Síðan fór ég suður, Icelandic Airwaves, Músíktilraunir, Skrekkur, Söngvakeppni skólanna, Evrovision, Ungsveit Sinfóníunnar, Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna, Norðurlandameistarar í djassi, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Ungfónían, Kammersveit Reykjavíkur, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Íslenska óperan, ekki er hér rúm til að nefna ótal hópa sem kenndir eru við „krúttkynslóð" og flytja tónlist víða um heim. Tónlistarhátíðir: Þjóðlagahátíð á Siglufirði, Myrkir músíkdagar, Berjadagar, Reykholtshátíð, Sumartónleikar í Skálholti, Djasshátíð í Reykjavík, Djasshátíð Austurlands, Listasumar á Akureyri, Tónlistarstarf á Hólum í Hjaltadal, á Klaustri, Við Djúp, Kirkjulistahátíð, Listahátíð í Reykjavík, þúsundir syngjandi radda í skólum og kirkjum, sem lyfta andanum og telja í okkur kjark á tímum erfiðleika og andstreymis." Svona lét vinur minn dæluna ganga og geystist yfir þetta víða svið.

En hvað hefur breyst? - Ekkert sprettur af engu. - Árið 1966, er stórvirki Beethovens var fyrst flutt og Ísland kvaddi sér hljóðs á þessu sviði heimsmenningarinnar, var blekið rétt að þorna af nýrri lagasetningu Gylfa Þ. Gíslasonar um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, en þar með hófst menningarsókn, sem enn sér ekki fyrir endann á. Það var þetta sem félagi minn reyndi að átta sig á. Allt of fáir sjá þessa atburðarás í samhengi. Fyrir tilstilli lagasetningar Gylfa og síðar Vilhjálms Hjálmarssonar urðu til tækifæri til menntunar í hljóðfæraleik og söng og með árunum varð til fjöldahreyfing sem ber uppi þessa miklu grósku. Hvert væri menningarstig okkar ef framsýni þessara frumkvöðla á hinu menningarpólitíska sviði hefði ekki notið við? Tónlistarskólar um allt land helga sér laugardaginn 27. febrúar til að kynna starf sitt. Á heimasíðum þeirra má fræðast nánar um dagskrá á hverjum stað. Sækjum þá heim og gleðjumst með kennurum og nemendum yfir góðum árangri. Til hamingju með daginn.

Höfundur er tónlistarskólastjóri.




Skoðun

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×