Meira um málfar og umburðarlyndi Ásgrímur Angantýsson skrifar 12. júlí 2010 06:00 Þorgrímur Gestsson, blaðamaður og rithöfundur, skrifar grein í Fréttablaðið 10. júlí sl. þar sem hann bregst við pistli mínum um málfar og umburðarlyndi í Víðsjá 6. júlí og styttri útgáfu af honum í Fréttablaðinu daginn eftir. Kjarninn í grein Þorgríms er sá að ég eigi frekar að einbeita mér að því að lesa prófarkir og leiðbeina starfsmönnum Ríkisútvarpsins um gott málfar en að ráðast á málvöndunarmenn og þá sem láta sig móðurmál okkar varða. Grein mín var ekki árás á málvöndunarmenn heldur gagnrýni á dómhörku og alltof ríka tilheigingu til umvöndunar í umræðu og ábendingum um málfar. Það væri reyndar í meira lagi sérkennilegt ef ég hefði ætlað mér að koma „afturhaldsorði“ á þá sem unna málinu og leggja stund á málvöndun því að ég tilheyri sjálfur þeim hópi. Ekki kannast ég heldur við að ég né aðrir íslenskufræðingar af yngri kynslóðinni amist við „hvers konar athugasemdum við málfar“. Í starfi mínu legg ég einmitt mikla áherslu á vandað mál og viðeigandi málsnið og Þorgrímur þarf ekki að óttast að ég leggi blessun mína yfir hvað sem er. Samkvæmt málstefnu Ríkisútvarpsins eiga starfsmenn að leggjast á eitt til að málfar sé til fyrirmyndar. Ég veit vel að það tekst ekki alltaf en það er sannarlega markmiðið. Þorgrímur tekur undir það meginsjónarmið íslenskrar málstefnu að það beri að varðveita íslenskt málkerfi í megindráttum og efla málnotkun á sem flestum sviðum en spyr hvar ég vilji draga mörkin milli þess og „bókstafstrúarinnar“ sem ég talaði um. Því er til að svara að það er vel hægt að þjóna markmiðum málstefnunnar án þess að festast í einstrengingslegum viðmiðum um rétt og rangt. Með bókstafstrú í málfarsefnum á ég t.d. við þá hugmynd að það sem ekki finnist í orðabókum eða handbókum hljóti að vera vitlaust. Samkvæmt því væri rétt að segja Hann rústaði íbúðina af því að orðabókin gefur slík dæmi en Hann rústaði íbúðinni væri talið rangt mál þó að það sé afar útbreitt og samræmist betur máltilfinningu margra. Tilbrigði eins og þessi eru raunar engin ógn við íslenskt málkerfi. Nýjungin felst einfaldlega í því að andlagið er haft í þágufalli en ekki þolfalli og hvorki þolfallinu né beygingarkerfinu er nokkur hætta búin því að flest andlög eru eftir sem áður í þolfalli: Kennarinn braut stólinn, Konan kyssti manninn o.s.frv. Að lokum vil ég stinga upp á eftirfarandi „uppskrift“ að málfarsleiðbeiningum: 1) Að skilgreina nýjungina og lýsa því hvernig hún víkur frá hefðbundinni málnotkun. 2) Að skýra hvers vegna breytingin kemur upp og hvernig notkuninni er háttað. 3) Að upplýsa um að nýja notkunin þyki ekki gott mál og þess vegna sé ástæða til að forðast hana við formlegar aðstæður. Ef vel tekst til verður viðtakandinn einhvers vísari, áttar sig á um hvað málið snýst og getur myndað sér sjálfstæða skoðun. Það er líka auðveldara að muna það sem maður skilur. Málfarsábendingar snúast of oft upp í einfölduð boð og bönn þar sem viðtakandanum eru ekki gefnar nægilegar forsendur til að fara eftir þeim. Það er kannski einmitt þess vegna sem þær missa oft marks. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir Skoðun Ég, glæpamaður Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Rúllum út rauða dreglinum Pétur Marteinsson Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði Skoðun Rödd ungs fólks á Seltjarnarnesi þarf að heyrast Auður Halla Rögnvaldsdóttir Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði skrifar Skoðun Hér er matur, um mat, frá mat, til fæðubótarefna... Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tryggjum fæðu- og eldsneytisöryggi með uppbyggingu á Dysnesi Pétur Ólafsson skrifar Skoðun Sterk vinnustaðarmenning er lykillinn að góðum árangri Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Nýtt Álftanes á einu kjörtímabili Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Gagnsæi í ákvarðanatöku Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun í breyttri heimsmynd Erna Björnsdóttir skrifar Skoðun Rödd ungs fólks á Seltjarnarnesi þarf að heyrast Auður Halla Rögnvaldsdóttir skrifar Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir skrifar Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Rúllum út rauða dreglinum Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Ég, glæpamaður Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Með svipuna á bakinu Rannveig Eyja Árnadóttir skrifar Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að fordæma stríðið í Íran, Líbanon og Gaza Einar Baldvin Árnason skrifar Skoðun Sterk viska í stafni íslenskrar kjarabaráttu Freyr Snorrason skrifar Skoðun Gervigreind, ábyrgð og framtíð samfélags okkar Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Mjallhvít og dvergarnir sjö Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu Hugrún Elvarsdóttir,Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Viljum við virða mannréttindi fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Maístjörnur verkalýðsins, riddarar hringborðsins eða konungsríki fárra – við viljum von, trú og kærleika Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Kvenheilsa, læknisfræðilegt kannabis og lýðheilsa — tækifæri fyrir Ísland Magnús Þórsson skrifar Skoðun Hættulegasta fitan er ekki sú sem sést utan á líkamanum Anna Lind Fells skrifar Sjá meira
Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir Skoðun
Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að fordæma stríðið í Íran, Líbanon og Gaza Einar Baldvin Árnason skrifar
Skoðun Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu Hugrún Elvarsdóttir,Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar
Skoðun Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir skrifar
Skoðun Maístjörnur verkalýðsins, riddarar hringborðsins eða konungsríki fárra – við viljum von, trú og kærleika Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar
Skoðun Kvenheilsa, læknisfræðilegt kannabis og lýðheilsa — tækifæri fyrir Ísland Magnús Þórsson skrifar
Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir Skoðun