Skoðun

Lýðskrumandi PC-hérar

Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar

Pínlegt er að fylgjast með mönnum ráða í úrslit sveitarstjórnarkosninganna. Þar flýgur hver sem hann er fiðraður með eigin hagsmuni að leiðarljósi eftir flokkspólitísku landslaginu. En skilaboðin eru kvitt og klár. Þau eru til stjórnarflokkanna tveggja, svohljóðandi: Hættið að vera þessir pc-hérar* og farið að taka til hendinni. Annars verður ykkur refsað grimmilega í næstu þingkosningum.

Okkur bráðvantar sem aldrei fyrr röska menn við völd sem eru ekki lýðskrumandi pc-hérar. Menn sem hlusta á rök frekar en háværa og freka, heimska og hrædda forræðishyggjusinna. Og gera eitthvað. Plægja akur fyrir verðmætasköpun. Af hverju er til dæmis ekki löngu búið að opna spilavíti fótboltatvíburanna sem bæði getur reynst gjaldeyris- og atvinnuskapandi? Og hefur það sér til ágætis að ýta spilamennsku sem hér grasserar upp á yfirborðið. Hvað heldur fólk að gerist? Að landsmenn umturnist við slíkt í froðufellandi fíkla sem spila rassinn úr buxunum?

Afsakið, hér er bara allt vaðandi í spilavítum, einhentum ræningjum á hverju götuhorni, lottó og lengjum og hvað þetta heitir allt. Þetta er spilavíti! Bara svo eitt dæmi sé nefnt. En, nei. Menn þora engu í einhverjum ótta við óvinsældir háværra bannista og því er fylgið að gufa upp. Nú er ekki rétti tíminn til að stjákla sem köttur um heitan graut. Á þessum tímum er sennilega betra að taka ranga ákvörðun en enga.

Að einhver hafi á röngu að standa þýðir ekki að hinn hafi rétt fyrir sér í einu og öllu. Vinstri grænir duttu beint í þessa gryfju rökfræðivillunnar og Samfylkingin lætur það yfir sig ganga. Það að frjálshyggjan (sem var í raun ólígarkismi) hafi riðið hér öllu á slig þýðir ekki að argasta vinstra-afturhald sé rétta leiðin. Í stað þess að banna auglýsingar á pilsner eigum við einmitt að stíga í hina áttina og aflétta fráleitu banni við bjórauglýsingum. Ögmundur! Það er þess vegna sem kjósendur eru farnir að gefa auga arkítektum og aðalverktökum hrunsins - Sjálfstæðisflokknum.

Farið er að slá í söng Steingríms Joð um að fylgistap hafi verið óhjákvæmilegt vegna hinna erfiðu aðgerða sem stjórnin þarf að standa í. Allir vita að þetta er erfið staða! Fólk er að mótmæla aðgerðarleysinu en ekki aðgerðum sem engar eru. Stjórnarliðið fer í galinn flatan niðurskurð í stað þess að skilgreina hlutverk ríkisins og slá skjaldborg um hjúkkur, kennara og löggur. Í þessari röð. Og skera fitulögin í ofbólgnum ríkisrekstrinum frá. Hvað höfum við til dæmis við Jafnréttisstofu á Akureyri að gera þegar verið er að róa lífróður til lands? Firringin gagnvart ríkisrekstrinum er reyndar slík að mann setur hljóðan. Lilja Mósesdóttir segir að ekkert þýði að segja upp (óþörfum) ríkisstarfsmönnum því þá fjölgi bara atvinnulausum!

*PC vísar til þess sem á ensku heitir Politically Correct sem hefur á íslensku verið kallað pólitískur rétttrúnaður.








Skoðun

Skoðun

Afruglari

Þórður Björn Sigurðsson skrifar

Sjá meira


×