Aðlaðandi ævistarf Marta Dögg Sigurðardóttir og Ingibjörg Kristleifsdóttir skrifar 3. júní 2010 12:41 Kæri lesandi sem ert tilbúinn til þess að velja þér ævistarf. Undirritaðar eru í forsvari fyrir Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla og langar til þess að deila með þér nokkrum atriðum sem kunna að hjálpa þér við val á ævistarfi. Leikskólinn er fyrsta skólastigið á Íslandi og þar stíga börn sín fyrstu skref á menntabrautinni. Í leikskólum gefst því einstakt tækifæri til að hafa áhrif á framtíðina. Leikskólakennsla er aðlaðandi ævistarf, gefandi og skemmtileg. Kannanir sýna að starfsánægja leikskólakennara er mikil og þeir upplifa árangur verka sinna á hverjum degi. Leikskólakennari gengur inn í lærdómssamfélag með samstarfsfólki sínu og nemendum. Hann byggir starf sitt á fræðum sem eru lögð til grundvallar hjá menntavísindasviði HÍ og kennaradeild HA og heldur áfram að vera rannsakandi í starfi eftir að formlegu námi lýkur. Símenntun er í boði alla starfsævina og er þátttaka í henni metin til launa. Leikskólakennari hefur góða möguleika á framgangi í starfi ef hann kýs það. Með aukinni menntun leikskólakennara mun leikskólastarf á Íslandi eflast og kjörin styrkjast. Ekki aðeins í krónum heldur starfsumhverfi í heild. Markmið leikskólastarfs er að veita börnum bestu hugsanlegu uppeldisskilyrði og menntun. Hvert og eitt barn á að fá viðfangsefni við sitt hæfi í örvandi og öruggu umhverfi þannig að hæfileikarnir blómstri og barnið njóti þess sem lífið hefur að bjóða. Það gerist í samspili með samferðafólki þar sem einstaklingurinn nýtur sín innan hóps og hópurinn auðgar einstaklinginn. Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður Félags leikskólastjórnenda Samkvæmt hugmyndafræði leikskólans er barnið virk og skapandi manneskja, litið er á leikinn sem helstu náms- og þroskaleið og mikil áhersla er lögð á skapandi starf. Gleði, áhugi, virkni, samskipti og vinátta einkenna leikskólastarf og hver dagur býður upp á nýjar áskoranir og ný og spennandi viðfangsefni. Vaxandi fjöldi starfsmanna í leikskólum hefur lokið námi í leikskólakennarafræðum en betur má ef duga skal. Samkvæmt lögum um leikskóla eiga að lágmarki 2/3 þeirra sem starfa að uppeldi og menntun leikskólabarna að hafa leyfisbréf sem leikskólakennari. Einungis rúmur þriðjungur starfsmanna uppfyllir þau skilyrði núna. Leikskólakennarar búa við mikið starfsöryggi og tryggt er að þeir sem útskrifast næstu áratugina eru öruggir um atvinnu. Dagana 5. og 6. júní rennur út umsóknarfrestur um nám í háskólum. Hugsaðu málið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Kæri lesandi sem ert tilbúinn til þess að velja þér ævistarf. Undirritaðar eru í forsvari fyrir Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla og langar til þess að deila með þér nokkrum atriðum sem kunna að hjálpa þér við val á ævistarfi. Leikskólinn er fyrsta skólastigið á Íslandi og þar stíga börn sín fyrstu skref á menntabrautinni. Í leikskólum gefst því einstakt tækifæri til að hafa áhrif á framtíðina. Leikskólakennsla er aðlaðandi ævistarf, gefandi og skemmtileg. Kannanir sýna að starfsánægja leikskólakennara er mikil og þeir upplifa árangur verka sinna á hverjum degi. Leikskólakennari gengur inn í lærdómssamfélag með samstarfsfólki sínu og nemendum. Hann byggir starf sitt á fræðum sem eru lögð til grundvallar hjá menntavísindasviði HÍ og kennaradeild HA og heldur áfram að vera rannsakandi í starfi eftir að formlegu námi lýkur. Símenntun er í boði alla starfsævina og er þátttaka í henni metin til launa. Leikskólakennari hefur góða möguleika á framgangi í starfi ef hann kýs það. Með aukinni menntun leikskólakennara mun leikskólastarf á Íslandi eflast og kjörin styrkjast. Ekki aðeins í krónum heldur starfsumhverfi í heild. Markmið leikskólastarfs er að veita börnum bestu hugsanlegu uppeldisskilyrði og menntun. Hvert og eitt barn á að fá viðfangsefni við sitt hæfi í örvandi og öruggu umhverfi þannig að hæfileikarnir blómstri og barnið njóti þess sem lífið hefur að bjóða. Það gerist í samspili með samferðafólki þar sem einstaklingurinn nýtur sín innan hóps og hópurinn auðgar einstaklinginn. Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður Félags leikskólastjórnenda Samkvæmt hugmyndafræði leikskólans er barnið virk og skapandi manneskja, litið er á leikinn sem helstu náms- og þroskaleið og mikil áhersla er lögð á skapandi starf. Gleði, áhugi, virkni, samskipti og vinátta einkenna leikskólastarf og hver dagur býður upp á nýjar áskoranir og ný og spennandi viðfangsefni. Vaxandi fjöldi starfsmanna í leikskólum hefur lokið námi í leikskólakennarafræðum en betur má ef duga skal. Samkvæmt lögum um leikskóla eiga að lágmarki 2/3 þeirra sem starfa að uppeldi og menntun leikskólabarna að hafa leyfisbréf sem leikskólakennari. Einungis rúmur þriðjungur starfsmanna uppfyllir þau skilyrði núna. Leikskólakennarar búa við mikið starfsöryggi og tryggt er að þeir sem útskrifast næstu áratugina eru öruggir um atvinnu. Dagana 5. og 6. júní rennur út umsóknarfrestur um nám í háskólum. Hugsaðu málið.
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar