Bankavextir freista erlendra fjárfesta Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar 5. maí 2010 04:30 Gylfi Magnússon
Rúmur helmingur af allri erlendri nýfjárfestingu sem komið hefur inn í landið frá því slakað var á gjaldeyrishöftum í lok október í fyrra hefur farið inn á innlánsreikninga í bönkunum. Erlendir aðilar hafa fjárfest hér á landi fyrir 15,9 milljarða króna frá 1. nóvember í fyrra til 8. apríl á þessu ári, samkvæmt gögnum frá Seðlabankanum. Þetta skref í afnámi gjaldeyrishaftanna fól í sér heimild til innstreymis erlends gjaldeyris til nýfjárfestinga og útstreymis gjaldeyris sem kann að leiða af því í framtíðinni. Fengu þá fjárfestar heimild án takmarkana til þess að skipta aftur í erlendan gjaldeyri söluandvirði eigna sem þeir fjárfesta í, ásamt fjármagnstekjum af þeim. Af heildarinnflæði erlends fjármagns frá í nóvember fór rúmur 8,1 milljarður króna inn á innlánsreikninga en tæpir 6,2 í fjárfestingar í atvinnurekstri. Tæpir 1,6 milljarðar króna fóru í viðskipti með skráða fjármálagerninga, þar á meðal hlutabréf og skuldabréf, og í fasteignakaup. Á sama tíma hefur útflæði sem leyft var á sama grunni aðeins verið 31 milljón króna. Innstreymið á erlendu fjármagni var mest í nóvember og desember, 4,5 milljarðar króna hvorn mánuð, en úr því dró eftir því sem á leið, líkt og sést á töflunni hér til hliðar. „Þetta eru ekki háar tölur, þær eru mun lægri en við hefðum viljað sjá,“ segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann bendir á að fjárfestingar erlendra aðila hér sé einn af óvissuþáttunum sem nefndir eru í skýrslu starfshóps Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) vegna annarrar endurskoðunar efnahagsáætlunar stjórnvalda og sjóðsins. Gylfi segir mikilvægt að auka fjárfestingar hér, hvort heldur er innlendra og erlendra aðila. Það skipti máli bæði fyrir hagvöxt og geti dregið úr atvinnuleysi. „Við verðum að gera okkar besta til að skapa umhverfi sem hvetur til fjárfestinga,“ segir Gylfi. Tryggvi Tryggvason, framkvæmdastjóri eignaumsýslu og ráðgjafar hjá Saga Capital fjárfestingarbanka, segir innflæðið meira en hann hafi búist við. Hann rifjar upp að margir hafi verið efins um að þessi fyrstu skref í afnámi gjaldeyrishafta myndu skila miklu. Tryggvi segir háa bankavexti freista fjárfesta en telur ekki útilokað að eitthvað af fénu bíði þess að fara í fjárfestingar. „Ég reikna með að þeir peningar sem liggja í innlánum og ríkisskuldabréfum muni að einhverju leyti rata út í atvinnulífið eftir því sem vextir lækka,“ segir hann.
Mest lesið Reka forstjóra danska lyfjarisans sem malar gull á Ozempic Viðskipti erlent Tilefni fyrir ríkið að íhuga sölu Landsbankans Viðskipti innlent Ríflega þrjátíu þúsund einstaklingar kaupa hlut ríkisins Viðskipti innlent Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili Viðskipti innlent Himinlifandi og ekki hugsi yfir litlum hlut fagfjárfesta Viðskipti innlent Heinemann svarar Sameyki: „Þetta er rangt“ Viðskipti innlent Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent Heildarvirði tæpur 91 milljarður og líkur á að nær allir hlutir fari til almennings Viðskipti innlent Að nýta kvíðann sem styrkleika og okkur til framdráttar Atvinnulíf Strætó hættir að taka á móti reiðufé í vögnum 1. júní Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tilefni fyrir ríkið að íhuga sölu Landsbankans Strætó hættir að taka á móti reiðufé í vögnum 1. júní Himinlifandi og ekki hugsi yfir litlum hlut fagfjárfesta Heinemann svarar Sameyki: „Þetta er rangt“ Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili Ríflega þrjátíu þúsund einstaklingar kaupa hlut ríkisins „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Heildarvirði tæpur 91 milljarður og líkur á að nær allir hlutir fari til almennings Líklega stærsta eignasala ríkissjóðs frá upphafi Selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka Sjóvá tapar hálfum milljarði Málaferli vegna innkaupa ÁTVR halda enn áfram Jón Ólafur nýr formaður SA Hefja flug til Edinborgar og Malaga Árni hættir sem forstjóri Húsasmiðjunnar Landsbankinn við Austurstræti falur Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Bein útsending: Lokadagur Nýsköpunarviku Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Spá óbreyttum stýrivöxtum Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Heildarvirði tæpur 91 milljarður og líkur á að nær allir hlutir fari til almennings Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Heildarvirði tæpur 91 milljarður og líkur á að nær allir hlutir fari til almennings Viðskipti innlent