Skoðun

Í dag ræður þú

Hanna Birna Kristjánsdóttir skrifar

Í dag göngum við til kosninga og veljum borgarstjórn til næstu fjögurra ára. Viðfangsefni borgarstjórnar eru afar mikilvæg og hafa bein áhrif á líf allra borgarbúa á degi hverjum. Skólarnir okkar, leikskólarnir, þjónusta við eldri borgara - allt verður þetta að virka og vera í góðu lagi. Þess vegna eru þessar kosningar mikilvægar, við eigum svo mikið undir því að okkar nánasta umhverfi sé í lagi, ekki síst fyrir þau sem standa hjarta okkar næst.

Ég er stolt af störfum mínum sem borgarstjóri. Við höfum náð miklum árangri. Ég hef beitt mér fyrir nýjum vinnubrögðum í stjórnmálum og lagt mig fram um að vinna vel með öllum, sama úr hvaða flokki þeir koma. Þessi nýju vinnubrögð hafa skilað farsælum lausnum og árangri fyrir borgarbúa, enda er í mínum huga enginn vafi á því að þannig njóti borgarbúar betur krafta allra borgarfulltrúa en þegar hver höndin er upp á móti annarri.

Skattar hafa ekki verið hækkaðir en þrátt fyrir það stendur borgin sterk fjárhagslega og íbúar geta verið öruggir um að njóta áfram þeirrar grunnþjónustu sem þeir hafa vanist. Borgarsjóður hefur verið rekinn hallalaus. Þessi trausta staða skiptir miklu fyrir börnin okkar og framtíðina. Við höfum forgangsraðað í þágu barna og velferðarþjónustu í borginni. Við höfum tryggt öllum börnum sem verða tveggja ára á árinu leikskólapláss og öllum grunnskólabörnum þjónustu á frístundaheimilum. Að auki eru leikskólagjöld, frístundaheimilisgjöld og matargjöld í grunnskólum með þeim lægstu á höfuðborgarsvæðinu.

Ég er stolt af því að Reykjavíkurborg hefur haldið uppi framkvæmdum, sem veita fjölda fólks atvinnu og stutt við atvinnuskapandi verkefni. Á þessu ári verður framkvæmt fyrir 26 milljarða á vegum Reykjavíkurborgar og fyrirtækja hennar en til samanburðar má nefna að ríkið framkvæmir á sama tíma fyrir 18 milljarða.

Ég vona að í dag verði kosið um þessi góðu verk. Reykvíkingar eiga það skilið að hagsmunir þeirra og framtíð séu meginverkefni þessara kosninga.

Ég hvet Reykvíkinga til að mæta á kjörstað í dag og bið um stuðning til að gegna áfram störfum borgarstjóra. Atkvæði greitt Sjálfstæðisflokknum er atkvæði til þess og stuðlar að enn frekari árangri, sátt og stöðugleika. Þannig getum við haldið áfram að vinna saman í þágu allra borgarbúa.

Hanna Birna Kristjánsdóttir,

Borgarstjóri






Skoðun

Skoðun

Afruglari

Þórður Björn Sigurðsson skrifar

Sjá meira


×