Skoðun

Pistill: Ögmundur er algjörlega úti að aka

Friðrik Indriðason skrifar

Ögmundur Jónasson þingmaður VG og fyrrum ráðherra er algjörlega úti að aka í yfirlýsingum sínum um Má Guðmundsson seðlabankastjóra. Það er greinilegt að þingmaðurinn hefur ekki hundsvit á efnahagsmálum og hvernig þau eru skrúfuð saman hérlendis í augnablikinu.

Már Guðmundsson benti réttilega á eftir vaxtaákvörðun peningastefnunefndar í gærmorgun að lækka hefði mátt stýrivexti enn meir en gert var ef óvissan væri ekki til staðar í Icesave málinu. Hann útskýrði þetta með því að Icesave-óvissan veldur því að skuldatryggingaálag á ríkissjóð er aftur komið upp úr þakinu. Jafnhliða er lánshæfiseinkunn landsins komin í ruslflokk hjá einu matsfyrirtæki og á leið þangað hjá öllum hinum.

Ögmundur segir að með því að segja sannleikann og stöðuna eins og hún er sé seðlabankastjóri að hóta þjóðinni. Með því að segja sannleikann um efnahagslegan veruleika þjóðarinnar sé seðlabankastjóri að blanda sér í pólitík.

Fyrir mína parta vil ég heldur hafa seðlabankastjóra sem segir sannleikann heldur en seðlabanakastjóra sem er í einhverjum pólitískum pælingum. Orð Ögmundur sýna að hann vill heldur seðlabankastjóra sem tekur mið af einhverjum pólitískum línum. Guð hjálpi okkur ef slíkur maður kemst aftur í stöðu seðlabankastjóra.

Raunar má bæta því inn í hér að vaxtalækkun Seðlabankans kom þeim sem vit hafa á efnahagsmálum töluvert á óvart. Þetta sýnir fyrirsögn á börsen.dk eftir vaxtaákvörðunina þar sem vitnað var í sérfræðinga Bloomberg fréttaveitunnar. Þrír af fjórum þeirra bjuggust við óbreyttum vöxtum einmitt út af stöðunni sem komin er upp vegna Icesave-óvissunnar.

Yfirlýsingar Ögmundar Jónassonar um seðlabankastjóra eru ekkert annað en lýðskrum af verstu sort og alls ekki til þess fallanir að bæta neinu vitrænu við umræðuna sem er í gangi. Þær eru til þess eins að þingmaðurinn geti baðað sig Í stundarblíðu vinsælda fram eftir degi.










Skoðun

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×