Skipulagsmál í réttarríki 24. febrúar 2010 06:00 Skipulagsferli eiga samkvæmt ákvæðum skipulagslaga að vera opin og lýðræðisleg ákvarðanatökuferli þar sem íbúar, samtök og hagsmunaaðilar geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri og réttaröryggi þeirra tryggt. Þegar framkvæmdaraðili er orðinn kostunaraðili sveitarstjórnar og annast auk þess margvíslega vinnu fyrir hönd hennar, s.s. umfjöllun um athugasemdir, raskast jafnvægið og réttur almennings verður fyrir borð borinn. Það er staðreynd að Landsvirkjun tók að sér samfélagsleg verkefni á borð við vegagerð og samskiptaþjónustu til þess að greiða fyrir skipulagsmálum við bakka Þjórsár. Enn fremur greiddi fyrirtækið sveitarstjórnarmönnum fyrir fundarsetu og stóð straum af kostnaði við gerð aðalskipulags sem gerði ráð fyrir virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Samkvæmt úrskurði samgönguráðherra er samkomulag Flóahrepps og Landsvirkjunar um að „Landsvirkjun bæti sveitarfélaginu að fullu kostnað sem kann það verða fyrir við aðal- og deiliskipulagsvinnu vegna virkjunarinnar" ólögmætt. Og vel að merkja, samgönguráðherra byggði úrskurð sinn á áliti umboðsmanns Alþingis. Sambærilegt ákvæði var að finna í samningi Landsvirkjunar við Skeiða- og Gnúpverjahrepp. Eðli málsins samkvæmt var skipulagstillögunum því synjað staðfestingu í umhverfisráðuneytinu sem fer með yfirstjórn skipulagsmála. Þar sem að skipulagstillögur sveitarfélaganna reyndust hafa verið unnar með ólögmætum hætti og stendur umhverfisráðherra með synjun sinni vörð um réttaröryggi einstaklinga og lögaðila í samræmi við markmið skipulags- og byggingarlaga. Þannig hafnar hann þeim andlýðræðislegu starfsháttum að framkvæmdaaðilar geti keypt sér skipulag hjá stjórnum sveitarfélaga að íbúum þeirra forspurðum. Milli Ölfuss og Orkuveitu Reykjavíkur er í gildi samkomulag frá apríl 2006 sem m.a. felur í sér að bæjarstjórn Ölfuss veiti framkvæmdaleyfi og greiði fyrir skipulagsmálum eins hratt og unnt er vegna áformaðra framkvæmda OR á Hengilssvæðinu. Jafnframt felur samkomulagið í sér að OR greiði sveitarfélaginu fyrir þann kostnað sem hlýst af auknu álagi á stjórnsýslu. Sveitarfélagið metur tekjur af samkomulaginu ígildi 500 milljóna kr. Í fundargerð bæjarstjórnar er samkomulagið afgreitt með bókun þar sem sveitarstjórn lýsir því yfir, strax í apríl 2006, að svæðið verði skipulagt „til samræmis við þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru". Þegar bæjarstjórn lýsir með þessum hætti yfir ákvörðun sinni um niðurstöðu í áformuðu opnu og lýðræðislegu ferli áður en skipulagið er auglýst og um það er fjallað blasir við að til stendur að fótumtroða rétt fólks til sanngjarnrar aðkomu að ferli sem felur í sér kynningarfundi og möguleika á að senda inn athugasemdir. Verklagið sem hefur drifið áfram stóriðjustefnu undanfarinna áratuga hefur einkennst af virðingarleysi fyrir þeim megintilgangi laga og alþjóðasamninga um umhverfis- og skipulagsmál að virkja almenning til að tryggja skynsamlega og hagkvæma nýtingu lands og landgæða, varðveislu náttúru og menningarverðmæta og koma í veg fyrir umhverfisspjöll og ofnýtingu. Í þessu sambandi má t.d. vísa til Ríó-tilskipunarinnar og Árósarsamningsins þar sem lýðræðisleg aðkoma fólks að opnu ferli við ákvarðanatöku er hornsteinn sjálfbærrar þróunar. Umhverfisráðherra hefur með úrskurðum sínum farið að lögum, úrskurði samgönguráðherra, áliti umboðsmanns Alþingis og lýðræðislegum reglum réttarríkis. Linnulausar ómálefnalegar og ómaklegar árásir á umhverfisráðherra og kröfur um að ráðherrann fari ekki að lögum eru fráleitar og ósæmandi. Atli Gíslason er þingmaður VG og Bergur Sigurðsson framkvæmdastjóri þingflokks VG. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir Skoðun Er einmanaleiki nýja tóbakið? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson Skoðun Börnin í Hveragerði Þorsteinn Hjartarson,Birgitta Ragnarsdóttir Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Hólar í Hjaltadal „hér og þar og þá og nú“ Gunnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Landskjörstjórn gerir athugasemd við spurninguna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Börnin í Hveragerði Þorsteinn Hjartarson,Birgitta Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Er einmanaleiki nýja tóbakið? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „Dæmisögur Jesú“—Líf sem ber hundraðfaldan ávöxt. Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Norsk Óskarsverðlaun og íslensk kreppa Sveinbjörn I. Baldvinsson skrifar Skoðun Þróun orðræðu um dauðann í íslenskri menningu Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði skrifar Skoðun Hér er matur, um mat, frá mat, til fæðubótarefna... Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tryggjum fæðu- og eldsneytisöryggi með uppbyggingu á Dysnesi Pétur Ólafsson skrifar Skoðun Sterk vinnustaðarmenning er lykillinn að góðum árangri Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Nýtt Álftanes á einu kjörtímabili Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Gagnsæi í ákvarðanatöku Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun í breyttri heimsmynd Erna Björnsdóttir skrifar Skoðun Rödd ungs fólks á Seltjarnarnesi þarf að heyrast Auður Halla Rögnvaldsdóttir skrifar Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir skrifar Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Rúllum út rauða dreglinum Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Ég, glæpamaður Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Með svipuna á bakinu Rannveig Eyja Árnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar