Hrottar ákærðir fyrir ofbeldisfull brot 3. nóvember 2010 04:00 fyrir dómi Viktor Már Axelsson mætir nú í annað skiptið fyrir dóm, ásamt Axel Karli Gíslasyni.
Þrír rúmlega tvítugir menn hafa verið ákærðir fyrir líkamsárásir, hótanir, tilraun til fjárkúgunar og vopnalagabrot. Tveimur mannanna er gefið að sök að hafa veist að tveimur lögreglumönnum í ágúst á síðasta ári, kýlt annan í andlitið og hinn í síðuna. Þá hótuðu mennirnir að lífláta sex lögreglumenn og fjölskyldur þeirra. Tveir þeirra, Axel Karl Gíslason og Viktor Már Axelsson, eru líka ákærðir fyrir að hafa veist að manni í Reykjanesbæ í maí síðastliðnum, þar sem hann var að setja kornabarn inn í bíl. Annar ógnaði honum með hnífi og báðir kýldu hann og spörkuðu ítrekað í hann. Þá réðust þeir á dóttur mannsins, kýldu hana í andlit og spörkuðu í hana og spörkuðu einnig í eiginkonu hans sem reyndi að verja hann árásum. Hótuðu þeir svo manninum hnífstungum og að lokum lífláti ef hann greiddi ekki ætlaða skuld barnabarns síns. Annar árásarmannanna hringdi í barnabarnið og sagði því að greiða 60 þúsund krónur innan tuttugu mínútna ella hefðu aðstandendur þess verra af. Krefjast fórnarlömb árásarmannanna samtals tæplega tveggja milljóna króna í skaðabætur. Axel er einnig ákærður, ásamt öðrum manni, fyrir innbrot í verslun í Grindavík. Höfðu þeir sett skartgripi í plastpoka fyrir tæplega 400 þúsund krónur þegar lögreglan handtók þá við innbrotið. Þeir Axel og Viktor hlutu báðir dóma í tengslum við innbrot og ofbeldisfullt rán í heimahúsi á Seltjarnarnesi. Sá dómur féll fyrir um það bil ári.- jss
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira