Enski boltinn

Tévez: Bellamy er besti leikmaður Man. City

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bellamy og Tevez virðast vera fínir félagar.
Bellamy og Tevez virðast vera fínir félagar.

Argentínumaðurinn Carlos Tévez hefur farið mikinn með Man. City í vetur en hann segist þó ekki vera besti leikmaður liðsins.

„Craig Bellamy er besti leikmaður Man. City. Ég er afar ánægður með að hann skuli hafa skorað tvö mörk gegn Chelsea. Ég er einnig hamingjusamur fyrir hönd liðsins sem og stuðningsmannanna," sagði klisjukenndur Tévez.

Argentínumaðurinn er sjálfur búinn að skora 21 mark í öllum keppnum í vetur og hann á því enn möguleika á að fá gullskóinn.

„Það væri mikið afrek miðað við hvernig Rooney og Drogba eru að spila. Það sem skiptir þó öllu er að liðið spili vel og vinni leiki."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×