Klara Elias, Alma Goodman og Camilla Stones flytja til LA 6. maí 2010 10:00 Hljómsveitin The Charlies pakkar ofan í ferðatöskur fyrir ferðalagið til Los Angeles. Frá vinstri eru þær Steinunn, Klara og Alma sem ætla nú að kalla sig Camilla Stones, Alma Goodman og Klara Elias. fréttablaðið/stefán „
Við getum ekki beðið. Við krossum allt sem hægt er að krossa til að eldgosið fari ekki að spúa í vitlausar áttir," segir Steinunn Camilla í hljómsveitinni The Charlies, sem áður hét Nylon. Þær vinkonur leggja af stað til Los Angeles á laugardaginn, nokkrum mánuðum síðar en upphaflega stóð til. Ástæðan er sú mikla pappírsvinna sem þarf að inna af hendi áður en landvistarleyfi fæst í Bandaríkjunum. Stelpurnar ætluðu að halda stórt partí um síðustu helgi til að kveðja vini og vandamenn en ákváðu á endanum að halda eitt stórt matarboð fyrir fjölskyldur sínar. „Við elduðum ofan í allan hópinn. Við tókum svona ítölsku stórfjölskylduna á þetta. Þetta var mjög gaman enda eigum við allar frábærar fjölskyldur. Það vill svo til að þessar þrjár fjölskyldur passa vel saman," segir Steinunn. Stelpurnar seldu fötin sín fyrir jól í Kolaportinu til að fjármagna ferðina og að undanförnu hafa þær verið að selja húsgögnin sín. Steinunn passar sig þó á að losa sig ekki við alveg allt. „Konur eiga alltaf nóg af skóm og fötum. Ég held ég þurfi heila tösku fyrir skóna mína." Undanfarið eitt og hálft ár hafa The Charlies unnið með upptökuhópnum Stop Wait Go að nýjum lögum og verða þær með fjórtán til fimmtán lög í farteskinu til Los Angeles. Þegar út verður komið fá þær einnig ný lög frá þarlendum lagahöfunum fyrir tilstuðlan útgáfufyrirtækisins Hollywood Records auk þess sem þær munu sjálfar taka þátt í lagasmíðunum. Aðdáendur The Charlies geta fylgst með hljómsveitinni á Facebook-síðu hennar þar sem ævintýrum hennar verða gerð náin skil á næstu misserum. - fb
Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Sjá meira